Veganestið – Þorvaldur Þóroddsson

Veganestið er greinaflokkur í boði Góðvina HA þar sem rætt er við brautskráða HA-inga
Veganestið – Þorvaldur Þóroddsson

Þorvaldur Þóroddsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, er viðmælandi marsmánaðar.

Sjávarplássið sem mótaði lífið

„Ég er fæddur og uppalinn í Neskaupstað og ólst sem sagt upp í sjávarplássi sem mótaði mig klárlega á margan hátt. Við strákarnir vorum gjarnan að þvælast á bryggjunum og enginn var maður með mönnum nema þekkja vélarhljóð allra skipa sem gerð voru út frá staðnum,“ segir Þorvaldur þegar hann rifjar upp bernskuna.

„Bæði faðir minn og afi voru sjómenn og ég fór barnungur í túr með pabba á síld og á framhaldsskólaárunum var ég á frystitogurum. Eftir nám í framhaldsskóla fyrir austan lá leiðin í Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði og síðan í Háskólann á Akureyri, þann góða skóla.“

Að velja nám sem endurspeglar atvinnugreinina

„Ég innritaðist í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri 1999 og útskrifaðist fjórum árum síðar sem sjávarútvegsfræðingur. Í mínum huga var í raun aðeins tvennt sem kom til greina: annars vegar Stýrimannaskólinn og hins vegar sjávarútvegsfræðin, sem ég valdi og sé ekki eftir því. Þetta var og er enn virkilega fjölbreytt og skemmtilegt nám sem sameinar vítt menntunarsvið, allt frá líffræði yfir í rekstrarfæði, markaðsfræði, vinnslutækni og fleira. Sjávarútvegsfræðin endurspeglar sem sagt fjölbreytileikann sem er í greininni sjálfri,“ segir Þorvaldur um námið.

„Eftir útskrift hóf ég störf hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins en tveimur árum síðar réði ég mig til Samherja, fyrst sem gæðastjóri í rækjuvinnslunni á Akureyri. Þar á eftir var ég gæða- og þróunarstjóri en frá 2012 hef ég starfað við landvinnslur félagsins og framan af sem framleiðslustjóri Útgerðarfélags Akureyringa. Síðustu ár hef ég haft með höndum hráefnisstýringu fyrir landvinnslur Samherja og samhliða komið töluvert að sölumálum félagsins.“

Í byrjun desember á síðasta ári var Þorvaldur svo ráðinn framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja er Kristján Vilhelmsson, einn af stofnendum félagsins, lét af því starfi. Þorvaldur, sem hefur búið og starfað fyrir norðan í um aldarfjórðung á starfsvettvangi tengdum sjávarútvegi, segir þetta fjölbreytta og skemmtilega atvinnugrein, „ og þegar upp er staðið má því segja að æskudraumurinn um að lifa og hrærast í þessari atvinnugrein hafi gengið eftir.“

Vinátta talin í áratugum

„Í mínum huga er það alveg kristaltært að sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri hefur skilað greininni verðmætu starfsfólki, enda mikill metnaður lagður í námið. Árin í HA sköpuðu góðar minningar og félagslífið var öflugt og skemmtilegt.“

„Þarna varð til vinátta sem núna er talin í áratugum, sem er auðvitað mikils virði. Eins og ég sagði áðan spannar námið afskaplega vítt svið og sú staðreynd hefur reynst traustur grunnur til að byggja á í þeim störfum sem mér hefur verið treyst fyrir. Þessi ár í Háskólanum á Akureyri mótuðu mig því ótvírætt á margan hátt, sem ég er þakklátur fyrir.“ Segir Þorvaldur um félagslífið í HA.

Aðspurður um hvaða þrjú orð hann tengi helst við HA kveður Þorvaldur þau mörg, en velur orðin framsýni, metnaður og gleði.

„Það kemur margt gott og minnisstætt starfsfólk upp í hugann þegar ég lít til baka, bæði kennarar og önnur. Þau skildu eftir sig spor, hvert með sínum hætti. Ég ætla þó að nefna tvo sem standa mér sérstaklega nærri í minningunni, Jón Þórðarson, þáverandi deildarstjóra sjávarútvegsdeildarinnar, og Sigþór Pétursson heitinn, sem hafði einstakan hæfileika til að tengja saman fræði og raunveruleikann og skilja eftir sig varanleg áhrif á nemendur. Báðir lögðu sitt af mörkum til að gera námið bæði krefjandi og skemmtilegt og eiga þakkir skildar fyrir það.“

Sögurnar sem ekki eru prenthæfar

Við spurðum Þorvald út í sögur frá HA árunum sem hann sagði að væru ýmsar, „en þær flestar standa sig betur í lokuðum hópi en á prenti. Þetta voru ár full af lífi sem mótuðu mig bæði sem nemanda og manneskju. Best er líklega að láta þessar sögur lifa áfram sem góðar minningar og brosa að þeim þegar gamlir HA-félagar hittast.“

Að lokum báðum við Þorvald um heilræði til handa þeim sem eru að íhuga nám. „Ákvörðun um námsleið er vissulega stór, en hún þarf síður en svo að vera endanlegt val fyrir ævistarfið. Það er um að gera að taka ákvörðun með opnum huga þá er líklegra að hún verði farsæl. Staðreyndin er sú að nemendur öðlast ákveðna þekkingu í öllu námi.“

Við þökkum Þorvaldi Þóroddssyni kærlega fyrir gott spjall og óskum honum áframhaldandi velfarnaðar í sínum störfum.

Fyrir áhugasöm má finna fleiri Veganestisviðtöl á Facebook-síðu Góðvina.