Viltu verða lögreglumaður?

Opið er fyrir umsóknir í lögreglufræði
Viltu verða lögreglumaður?

Á miðnætti opnaði fyrir umsóknir í lögreglufræði og er umsóknarfrestur til og með 26. mars. Háskólinn á Akureyri er eini háskóli landsins sem býður upp á nám í lögreglufræði. Námið veitir réttindi til að starfa sem lögreglumaður.

Bóklegt nám fer fram við Háskólann á Akureyri og starfsnám fer fram í Reykjavík og hjá lögregluembættum landsins á vegum Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu (MSL) í samvinnu við HA. Athugið að skyldumæting er í námslotur og á það bæði við um bóknámshlutann hjá HA og starfsnám hjá MSL.

Mikilvægt að kynna sér inntökuferlið vel

Almenn krafa er að umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi, sambærilegu prófi eða að lágmarki 60 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla. Inntaka er jafnframt háð inntöku í starfsnám á vegum MSL í samvinnu við HA.

Til þess að umsókn teljist gild í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn þarf umsækjandi meðal annars að samþykkja að fram fari bakgrunnsskoðun sem framkvæmd er af MSL sbr. 38 gr. lögreglulaga. Ítarlegri upplýsingar um inntökuskilyrði er að finna hér .Umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði í HA og koma til greina í starfsnám MSL þurfa að undirgangast læknisskoðun. Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér vel leiðbeiningar um mat á heilbrigði umsækjenda, sem er að finna á vefsíðu MSL. Umsækjendur bera sjálfir kostnað af læknisskoðuninni.

Áherslur námsins

Háskólinn á Akureyri leggur áherslu á að stúdentar í lögreglufræði séu virkir þátttakendur í námssamfélagi háskólans. Marmið námsins er að þú öðlist hæfni til að sinna verkefnum lögreglu á grundvelli þekkingar og skilnings á réttargæslukerfinu. Stúdentar í lögreglufræði fá kennslu og þjálfun í samskiptum við ólíka hópa samfélagsins, við aðrar fagstéttir og í að takast á við siðferðileg álitamál. Áhugasöm geta skoðað nánar skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.