Gervigreind, snjalltæki og kynfrelsi – er Sjallasleikurinn dauður?

10. febrúar 2026 kl. 10:00-11:00
Jafnréttisdagar 2026

Hvernig fara skapandi gervigreind og kynfrelsi einstaklinga saman á tímum þar
sem snjalltæki eru stanslaust upp?

Dr. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, sérfræðingur við Háskólann á Bifröst, Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri gervigreindar við Háskólann á Akureyri og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, nemi við MA og handboltakona í meistaraflokki KA/Þór koma saman og ræða áhrif gervigreindar á kynfrelsi í nútíma samfélagi.

Viðburðurinn er á vegum Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri í tilefni Jafnréttisdaga 2026. Hann fer í loftið þriðjudaginn 10. febrúar kl. 10 á Youtube rás Jafnréttisdaga.

Viðburðurinn fer fram á YouTube hér

Öll velkomin!