18. mars 2026 kl. 12:00-14:00
Á Lögfræðitorgi er rætt um framhald aðildarviðræðna við ESB. Annars vegar um aðildarferlið sjálft og hins vegar um möguleika á undanþágum frá einstökum þáttum í starfi sambandins eða sértækum lausnum vegna mikilvægra hagsmuna umsóknarríkis
Öll velkomin á Lögfræðitorg þar sem rætt verður um framhald aðildarviðræðna við ESB.
Tilefnið er að fram er komin þingsályktunartillaga um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst næstkomandi. Evrópumálin eru því rækilega komin á dagskrá og kjörið tækifæri til að ræða þau á hlutlausan og fræðandi hátt á vettvangi lagadeildar Háskólans á Akureyri. Slík umræða skapar hverjum og einum kjósanda, sem áhuga hefur á að setja sig inn í málið, bestu aðstæður sem völ er á í lýðræðislegu samfélagi til að taka upplýsta og vandaða ákvörðun fyrir sitt leyti.
Dagskrá
- Reglur Evrópusambandsins um inntöku nýrra ríkja - Dr. jur. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor og forseti Lagadeildar Háskólans á Akureyri
- Aðildarferlið, fullveldi og aðkoma þings og þjóðar - Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir lektor í Evrópurétti við Lagadeild Háskólans á Akureyri
- Undanþágur, aðlaganir og sértækar lausnir - Dr. Gunnar Þór Pétursson prófessor í Evrópurétti við lagadeild Háskólans í Reykjavík
- Almennar umræður
Stjórnandi Lögfræðitorgs: Davíð Þór Björgvinsson
Öll eru velkomin og torgið er opið öllum endurgjaldslaust!