Sjálfsafgreiðsla vottorða og námsferla

Kandídatar HA sem brautskráðust frá og með árinu 2015 geta nú sótt brautskráningarferlana sína á Ísland.is án endurgjalds
Sjálfsafgreiðsla vottorða og námsferla

HA er sífellt að vinna að rafrænum lausnum og leita leiða til að gera þjónustu við stúdenta aðgengilegri og óháða opnunartíma skrifstofu. Nýjustu viðbæturnar í rafrænni þjónustu við stúdenta er sjálfsafgreiðsla vottorða í Uglu sem og aðgengi að brautskráningarferlum á Ísland.is

Nemendaskrá HA hefur nú opnað fyrir sjálfsafgreiðslu vottorða og geta stúdentar sjálfir sótt sér eftirfarandi tegund af vottorði í Uglu án endurgjalds:

  • Vottorð sem staðfestir stöðu námsferils (brautskráður eða yfirstandandi ferill)
  • Vottorð sem staðfestir greiðslu skrásetningargjalds (síðasta greiðsla)
  • Vottorð sem staðfestir stöðu skólaárs (aðeins yfirstandandi skólaár)
  • Námsferilsyfirlit

Athugið að staðfestingu á mætingu í námlotu þarf áfram að óska eftir á Þjónustuborði Nemendaskrár á meðan á námslotu stendur.

Áfram verður hægt að fá ofangreind skjöl afgreidd á Þjónustuborði Nemendaskrár eða með því að senda tölvupóst á nemskra@unak.is. Vottorð sem ekki eru sótt í sjálfsafgreiðslu kosta 450 kr.

Þú finnur sjálfsafgreiðslu vottorða undir Uglan mín / Vottorð og námsferilsyfirlit

Kandídatar HA sem brautskráðust frá og með árinu 2015 geta nú sótt brautskráningarferlana sína á Ísland.is án endurgjalds. Kandídatar sem brautskráðust árið 2014 og fyrr þurfa að senda póst á nemskra@unak.is og óska eftir afriti.

Öll skjöl eru afhent með stafrænni undirritun sem heldur sér sé skjalið áframsent í tölvupósti eða sett sem viðhengi inn á t.d. „Mínar síður“ á vefsvæðum stofnana. Útprentað stafrænt skjal er ógilt.