Þarf alltaf að gera eitthvað mál úr þessu?

Pallborðsumræður í dag um veruleika hinsegin nemenda í íslenskum skólasamfélögum
Þarf alltaf að gera eitthvað mál úr þessu?

Í tengslum við Jafnréttisdaga háskólanna 2026 standa ERGI – Félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi, í samstarfi við Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri, Loka – Hinseginfélag VMA og PrideMA – Hinseginfélag MA, fyrir pallborðsumræðum þar sem sjónum er beint að veruleika hinsegin nemenda í íslenskum skólasamfélögum.

Markmið umræðanna er að varpa ljósi á upplifanir, áskoranir og kerfislæga þröskulda sem hinsegin nemendur sjá og upplifa innan menntakerfisins, allt frá grunnskóla til háskólastigs, og í samfélaginu í víðara samhengi. Fjallað verður um mikilvægi sýnileika, stuðnings, aðgengis og inngildingar sem og hlutverk stjórnvalda og skólasamfélaga í að tryggja öryggi, velferð og jöfn tækifæri allra nemenda.

Sjónum sérstaklega beint að landsbyggðinni

Sérstök áhersla verður lögð á stöðu hinsegin nemenda á landsbyggðinni, í smærri samfélögum og á norðurslóðum, þar sem aðgengi að stuðningsnetum, sérfræðiþekkingu og sýnilegum fyrirmyndum getur verið takmarkaðra en á höfuðborgarsvæðinu. Í slíkum aðstæðum geta skólar og nærsamfélagið gegnt lykilhlutverki sem vettvangur inngildingar, fræðslu og samfélagslegrar þátttöku.

Í pallborðinu verður einnig rætt um þau tækifæri sem felast í hinseginleika, bæði fyrir einstaklinga og skólasamfélög, og hvernig fjölbreytileiki getur styrkt nám, rannsóknir, sköpun og samfélagsþróun. Umræðurnar tengjast jafnframt breiðari markmiðum háskóla um samfélagslega ábyrgð, gagnrýna hugsun og lýðræðislega þátttöku.

Öll velkomin í HA!

Viðburðurinn fer fram í Háskólanum á Akureyri kl. 16:30 þann 9. febrúar, bæði á staðnum í stofu M101 og í streymi. Hér má nálgast ítarlegri upplýsingar um viðburðinn ásamt hlekk á streymi. Við hvetjum þátttakendur til þess að mæta á staðinn, taka þátt í umræðum og spyrja spurninga, á íslensku eða ensku.