Þarf alltaf að gera eitthvað mál úr þessu? – Veruleiki hinsegin nemenda í íslenskum skólasamfélögum

9. febrúar 2026 kl. 16:30-17:30
Jafnréttisdagar 2026

Á Jafnréttisdögum háskólanna 2026 stendur ERGI – Félag Hinsegin Stúdenta á Norðurlandi, í samstarfi við Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri, fyrir pallborðsumræðum þar sem sjónum er beint að upplifunum, áskorunum og þröskuldum hinsegin nemenda í skólasamfélögum og innan menntakerfisins.

Þátttakendur í pallborðinu verða fulltrúar frá ERGI og fulltrúar samtaka hinsegin nemenda MA og VMA.

Rætt verður um sýnileika, stuðning, aðgengi og inngildingu á öllum skólastigum ásamt mögulegum tækifærum sem felast í hinseginleika, hvort heldur sem er í námi, leik eða starfi, með sérstaka áherslu á landsbyggð, smærri samfélög og norðurslóðir.

Viðburðurinn fer fram bæði á staðnum og í streymi. Við hvetjum fólk til að taka þátt í umræðum. Velkomið er að spyrja á íslensku eða ensku.

Hlekkur á streymi

Öll velkomin!