Lögfræðitorg - Stofnun hafverndarsvæða í Inuit Nunangat

13. mars 2026 kl. 12:00-13:00
Kunuk Inutig, aðalsamningamaður Inúíta fjallar um ástæður þess að Inúítar taka virkan þátt í þróun og stofnun verndar- og friðlýstra svæða á sínu landsvæði

Tallurutiup Imanga hafverndarsvæðið og Tuvaijuittuq hafverndarsvæðið eru tvö afar víðfeðm hafsvæði á landsvæði Inúíta í heimskautahluta Kanada. Á lögfræðitorginu, mun aðalsamningamaður Inúíta, Kunuk (Sandra) Inutiq, fjalla um ástæður þess að Inúítar taka virkan þátt í þróun og stofnun verndar- og friðlýstra svæða á sínu landsvæði og þau sjónarmið og mat sem lágu til grundvallar við mótun þessara svæða.

Kunuk Inutiq er framsýn og áhrifamikil talskona Inúíta, fræðikona, rannsakandi, rithöfundur og ráðgjafi, og hefur hún varið starfsævi sinni til eflingar sjálfsákvörðunarréttar Inúíta, afnýlenduvæðingar og endurreisnar þekkingar og tungumáls Inúíta í Nunavut og Inuit Nunangat. Hún hefur gegnt fjölmörgum lykilstöðum í stjórnsýslu og samningsgerð — meðal annars sem forstöðumaður málaflokks sjálfsstjórnar hjá Nunavut Tunngavik Inc. og aðalsamningamaður Qikiqtani Inuit Association — og hefur stýrt mikilvægustu stefnumótunarverkefnum síðari ára, þar á meðal samkomulaginu um Tallurutiup Imanga hafverndarsvæðið, þar sem forgangsröðun Inúíta var samþætt stjórnsýslu, stefnumótun og vistkerfisvernd á gagnrýninn og nýstárlegan hátt.

Kunuk var fyrsta Inúk‑konan í Nunavut til að hljóta lögmannsréttindi, og sameinar hún í starfi sínu lagalega sérfræðiþekkingu við áratugalanga reynslu af stjórnsýslu Inúíta, víðtæka þátttöku í samfélagsmálum og persónubundna, reynslumiðaða þekkingu sem sprettur af djúpum tengslum hennar við heimasamfélag sitt, landið og menningu Inúíta. Í gegnum ráðgjafarstörf, sjálfstæðar rannsóknir og ritlist leitast hún við að stuðla að umbótum í stefnumótun og stofnanavæðingu, efla fræðslu um margbreytileika og dýpt tungumáls og umhverfisskilnings Inúíta og hvetja nýja kynslóð til að endurheimta og efla réttindi, vald og lífshætti frumbyggja. Kunuk er þekkt fyrir áhrifamiklar skýrslur, fræðileg skrif og stefnumótunargögn sem leggja áherslu á sjálfsákvörðunarrétt Inúíta, endurreisn tungumáls og samfélagslega valdeflingu. Hún samdi textann í samstarfi við Vivi Vold að fræðilegu minnisblaði sem ber heitið ,,Is Kalaallit Nunaat for Its People? Inuit Reflections on American (and Danish) Colonization”, sem gefið var út af Yellowhead‑stofnuninni.

Heimsókn Kunuk er rausnarlega styrkt af Sendiráði Kanada á Íslandi.

Torgið verður haldið á ensku og er öllum opið.

Ef mætt er á staðinn, vinsamlegast skráið ykkur til að tryggja viðeigandi veitingar. Smellið hér til að skrá mætingu.

Smellið hér til að tengjast streymi á zoom.