Langar þig að þróa skapandi hugsun, skoða samfélagið með nýjum hætti og efla þína eigin tjáningu?

Í samstarfi við Listaháskóla Íslands stendur þér til boða fjölbreytt úrval námskeiða á sviði lista, hönnunar og sviðslista. Þú getur skráð þig í eitt eða fleiri námskeið, eftir þínum áhuga og markmiðum.

Námskeiðn eru í boði á haustmisseri 2026. Námskeiðin eru opin öllum sem uppfylla inntökuskilyrði og geta jafnframt nýst sem valnámskeið fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri.

Námið er þverfaglegt og hentar stúdentum sem vilja nálgast samfélagsleg viðfangsefni á skapandi hátt, prófa nýjar aðferðir og vinna með öðrum úr ólíkum greinum.

Er námið fyrir þig?

  • Ertu stúdent í HA í leit af listrænum valnámskeiðum?
  • Hefur þú áhuga á endurmenntun á sviði lista? 
  • Starfar þú sem kennari?
  • Viltu efla færni þína í listum?

Fyrirkomulag námsins

Hvert námskeið er 6 ECTS einingar og kennt á grunnnámsstigi.

Kennslan er sveigjanleg og byggir á blöndu af:

  • Staðlostum á Akureyri
  • Fjarkennslu
  • Verkefna- og hópavinnu

Námskeið í boði

Hvert námskeið er 6 ECTS einingar. Þú getur valið eitt eða fleiri af eftirfarandi námskeiðum:

Að skapa tengsl í gegnum listamiðaða rannsókn (6 ECTS)

Þú kynnist listamiðuðum rannsóknaraðferðum þar sem skapandi tjáning og fræðileg vinna mætast, og lærir að nýta list til að skoða og miðla samfélagslegum viðfangsefnum.

  • Dagsetning: 22. september - 3. nóvember
  • Kennslufyrirkomulag: Blanda af stað- og fjarnámi. Verkefnavinna fer fram bæði sjálfstætt og í hópum.

Nánari upplýsingar á vef Opna Listaháskóla Íslands.

List- og heimildaljósmyndun: Sjónræn samfélagsrýni (6 ECTS)

Þú lærir að beita ljósmyndun sem skapandi og gagnrýnnu tæki til að skoða samfélagið, með áherslu á samtímalist og sjónræna frásögn.

Markmið námskeiðsins er að nemendur þrói með sér gagnrýna og meðvitaða sýn á samtímaljósmyndun sem tjáningarform og skapandi þátt í samfélagsumræðu.

  • Dagsetning: 2. september - 18. nóvember.
  • Kennslufyrirkomulag: Fjarnám með áherslu á tilraunir, verkefnavinnu og gagnrýna umræðu.

Nánari upplýsingar á vef Opna Listaháskóla Íslands.

Spuna aðferðir sviðslista (6 ECTS)

Áhersla á verklega vinnu þar sem þú þróar tjáningu, samvinnu og skapandi hugsun í gegnum spuna.

Kennslufyrirkomulag: Verkleg staðkennsla með þriggja vikna lotu þar sem mæting er lykilatriði. Unnið er í hópum með leiðsögn kennara.

Leikritagreining (6 ECTS)

Þú kynnist fjölbreyttum aðferðum við greiningu sviðsverka, frá hefðbundnum nálgunum til póstdramatískra strauma, og lærir að setja þau í sögulegt og samfélagslegt samhengi.

  • Dagsetning: 8. september - 24. nóvember.
  • Kennslufyrirkomulag: Blanda af stað- og fjarnámi. Áhersla á verkefni og umræðu.

Nánari upplýsingar á vef Opna Listaháskóla Íslands.

Metadesign aðferðafræði (6 ECTS)

Þú lærir að beita hönnunarhugsun og Metadesign til að greina aðstæður, kortleggja tengsl og þróa raunhæfar umbótalausnir í ólíku samhengi.

  • Dagsetning: 14. september - 2. nóvember.
  • Kennslufyrirkomulag: Blanda af stað- og fjarnámi. Mikil áhersla á teymisvinnu og verkefni tengd raunverulegum áskorunum.

Nánari upplýsingar á vef Opna Listaháskóla Íslands.

 

Inntökuskilyrði

Stúdentspróf eða annað sambærilegt próf.

Sækja um

Ef þú ert stúdent við Háskólann á Akureyri skráir þú þig í námskeiðin í gegnum Uglu þegar árleg skráning í námskeið opnar.

Ef þú ert ekki í námi við HA sækir þú um í gegnum vef Opna Listaháskóla Íslands.