Vísindadagur SAk og Heilbrigðisvísindastofnunar

18. september 2025 kl. 09:00-15:00
Takið daginn frá!

Vísindadagur SAk og Heilbrigðisvísindastofnunar HA og SAk (HHSA) fer fram fimmtudaginn 18. september.

Á Vísindadeginum verða rannsóknir starfsmanna SAk og HHSA kynntar auk þess sem veggspjöld er lýsa niðurstöðum rannsókna/verkefna verða til sýnis.

Gestir eru velkomnir á SAk (fundarherbergið Kjarni) eða á Teams (fjarfundur).

Undirbúningur og framkvæmd vísindadagsins er í höndum mennta- og vísindadeildar og vísindaráðs SAk.