Bókakynning - Áfall og hvað svo?

16. mars 2026 kl. 16:30-17:00
Dr. Sigrún Sigurðardóttir kynnir bók sína Áfall og hvað svo?

Dr. Sigrún Sigurðardóttir mun kynna bókina Áfall og hvað svo? og verður með bækur á staðnum.

Í bókinni fjallar Dr. Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, um áföll, afleiðingar þeirra og úrræði í bókinni. 

Sigrún er fædd og uppalin á Ísafirði en hún hefur meðal annars starfað sem lögregluþjónn, hjúkrunarfræðingur, aðstoðarrektor við Kvikmyndaskóla Íslands og sem jógakennari. Sigrún er með doktorsgráðu í hjúkrunarfræði og fjalla rannsóknir hennar um áhrif ofbeldis í æsku á líf og heilsu á fullorðinsárum. Hún hefur m.a. haft yfirumsjón og skipulagt námskeið á meistarastigi um sálræn áföll, ofbeldi og áfallamiðaða nálgun.

Fyrr um daginn er Málþing um um rannsóknir á sjálfsvígum. Málþingið markar mikilvægan áfanga þar sem kynnt verður samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Embættis landlæknis og Landspítala, um stofnun sameiginlegs rannsóknarvettvangs.

ÖLL VELKOMIN!