Málþing um rannsóknir á sjálfsvígum

16. mars 2026 kl. 09:15-12:30
Samstarf háskóla og annarra stofnana

Öll hjartanlega velkomin á Málþing um rannsóknir á sjálfsvígum: Samstarf háskóla og annarra stofnana

Á málþinginu koma saman fræðimenn og fagfólk til að kynna nýjustu sjálfsvígsrannsóknir ásamt fulltrúum þjónustu- og samfélagsúrræða sem sinna sjálfsvígsforvörnum á Íslandi.

Málþingið markar mikilvægan áfanga þar sem kynnt verður samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Embættis landlæknis og Landspítala, um stofnun sameiginlegs rannsóknarvettvangs og munu samstarfsaðilar formlega skrifa undir viljayfirlýsingu vegna samstarfsins á málþinginu. Verkefnið er styrkt af Samstarfi háskóla.

  • Málþingið fer fram í stofu M102 í Háskólanum á Akureyri
  • Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar
  • Léttur hádegisverður að málþingi loknu
  • Áhugasöm sem komast ekki á staðinn geta fylgst með streymi hér

Drög að dagskrá

09:15 - Setning málþings

  • Setning málþings
  • Opnunarávarp
  • Unnið saman. Að körtleggja rætur sjálfsvígshegðunar á Íslandi
    Högni Óskarsson, geðlæknir
  • Undirskrift stjórnar á yfirlýsingu um samstarf

09:45-09:55 Kaffihlé

09:55 Lota 1

  • Erindi
    Tómas Kristjánsson, sálfræðingur og lektor við Háskóla Íslands
  • Erindi
    Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsforseti samfélagssviðs hjá Háskólanum í Reykjavík
  • Vöktunar- og viðbragðshópur HRN
    Engilbert Sigurðsson, geðlæknir

10:25-10:35 Kaffihlé

10:35 Lota 2

  • Áfallasaga kvenna
    Patrekur Örn Gestsson
  • Rannsóknarverkefni
    Guðbjörg Tómasdóttir og Torfi Fannar Gunnarsson
  • Rannsóknarverkefni
    Þóra Katrín Erlendsdóttir

11:20 Pallborðsumræða

11:35-11:45 kaffihlé

11:45 Lota 3

  • Erindi
    Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri hjá Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna
  • Erindi
    Telma Smáradóttir og Birgir Örn Steinarsson frá Píeta samtökunum
  • Erindi
    Karen Birna Þorvaldsdóttir frá Hjálp48 og lektor við Hjúkrunarfræðideild HA

12:15 Pallborðsumræða og lokaorð

  • Pallborðsumræða
  • Lokaorð og þakkir

12:30 Léttur hádegisverður 

Skráning

Málþingið er öllum opið og er þátttaka gjaldfrjáls. Nauðsynlegt er að þátttakendur sem hyggjast mæta á staðinn skrái sig til þátttöku. 

Skráðu þig hér

Streymi

Áhugasöm sem ekki komast á staðinn geta fylgst með málþinginu í streymi í gegn um Zoom.

Smelltu hér til að opna streymið

 

Öll velkomin!