Félagsvísindanámið er fjölbreytt námsleið. Lögð er áhersla á að skoða samspil einstaklings, samfélags og menningar á ýmsum sviðum. Námið undirbýr þig til að rýna í og svara mikilvægum spurningum tengdum uppruna, stöðu og framtíð samfélaga í heimi hraðra breytinga.

Þú getur sérhæft þig á einu eða fleiri áhugasviðum. Í boði eru fjölbreytt valnámskeið til dæmis á sviði afbrotafræði, kynjafræði, ójöfnuði og málefna norðurslóða. Hluta námsins er hægt að taka við aðra innlenda eða erlenda háskóla.

Auk félagsvísinda er stutt en hagnýtt íslenskunám. Þú færð góðan grunn í íslenskri málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða. Auk þess að öðlast skilning á íslensku samfélagi og menningu.

Tengdar námsleiðir:

Er námið fyrir þig

  • Finnst þér jafnrétti og félagslegt réttlæti skipta máli?
  • Hefur þú áhuga á áhrifum hnattvæðingar og fjölmenningar?
  • Veltir þú fyrir þér hvernig loftslagsbreytingar móta samfélög?
  • Langar þig að greina hvar valdið liggur – og hvernig það virkar?
  • Langar þig að geta bjargað þér á íslensku í daglegu lífi?
  • Vilt þú auka möguleika þína á virkri þátttöku í íslensku samfélagi?

Áherslur náms í félagsvísindum

Námið byggir á traustum grunni félagsvísinda. Þú lærir að skoða samfélagið frá ólíkum sjónarhornum og tengja saman kenningar og raunveruleg málefni.

Markmiðið er að opna augu nemenda fyrir eðli, hegðun og samspili hópa, stofnana og samfélaga. Hverjar eru forsendur samstöðu og átaka og hvað veldur samfélagsbreytingum? Þú færð þjálfun í skipulagningu og framkvæmd rannsókna.

Fjölbreytt valnámskeið eru í boði sem gera þér kleift að dýpka þekkingu á sértækum viðfangsefnum.

Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.

Áherslur náms í íslensku

Stutt en hagnýtt diplómanám í íslensku sem annað mál, sérstaklega fyrir þau sem hafa lítinn grunn í íslensku en langar að geta bjargað sér á tungumálinu í daglegu lífi. Lögð er áhersla á tal, tjáningu og hlustun.

Þú munt öðlast færni í munnlegum og skriflegum samskiptum á íslensku ásamt góðum grunn í málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða.

Miðað er að því að þú munir geta tjáð þig við almennar aðstæður daglegs lífs, skilið umræðu um hversdagslega hluti og lesið og skilið einfalda texta.

Þú munt þurfa að mæta í rafræna tíma fjóra morgna eða síðdegis í hverri viku í 2 klukkustundir.

Þú getur skoðað skipulag námsins neðar á síðunni og í Uglu, kennsluvef háskólans.

Sveigjanlegt nám

Grunnnám í félagsvísindum er sveigjanlegt og hentar bæði þeim sem vilja vera á staðnum og þeim sem kjósa fjarnám. Allir fylgja sömu námskrá og kröfum um frammistöðu.

Þú getur tekið þátt í kennslu í rauntíma, annað hvort í kennslustofu eða í gegnum gagnvirkan fjarfundarbúnað. Flestir fyrirlestrar eru teknir upp og aðgengilegir á kennsluvef, þannig að þú getur horft á þá þegar þér hentar. Í einstaka námskeiðum taka allir stúdentar þátt í kynningum og umræðum í rauntíma.

Fjarnemar koma einu sinni á misseri í stuttar námslotur til Akureyrar þar sem áhersla er lögð á verkefnavinnu og umræður. Þar gefst tækifæri til að hitta kennara og samnemendur og tengjast enn betur háskólasamfélaginu þínu.

Hér getur þú lesið meira um sveigjanlega námið og séð hvenær námslotur eru.

Möguleikar að námi loknu

Félagsvísindanám veitir breiðan og sterkan grunn sem nýtist á mörgum sviðum.

Með aukinni íslenskukunnáttu eykur þú möguleika þína á íslenskum vinnumarkaði.

Brautskráðir nemendur úr félagsvísindum starfa meðal annars við:

  • málefni flóttafólks og innflytjenda
  • félags- og æskulýðsstarf
  • rannsóknir og greiningarvinnu
  • verkefnastjórnun og stefnumótun
  • stjórnsýslu og sveitarstjórnarmál

Námið er einnig góður undirbúningur fyrir framhaldsnám í félagsvísindum, bæði hérlendis og erlendis.

Félagslífið

Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms og er félagslíf nemenda við HA öflugt.

Allir nemendur við háskólann eru í Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA) en einnig er hver deild með sitt nemendafélag. Kumpáni er félag félagsvísindanema og þú getur nálgast nánari upplýsingar um félagið á Facebook.

Inntökuskilyrði

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi, jafngildu erlendu prófi eða 60 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla. Eða aðrar forsendur til náms sem Félagsvísindadeild metur fullnægjandi.

Tungumálapróf:

Allir umsækjendur þurfa að standast inntökupróf í íslensku sem haldið er 10. júní kl. 12:00–13:30 (tekur 90 mín). Próftökugjald er 15.000 kr.

Prófið er hægt að taka við HA, HÍ eða í viðurkenndum prófamiðstöðvum (aðstöðugjöld kunna að bætast við). Það metur grunnfærni í lesskilningi og hlustun.

Dæmi um próf: Lesskilningur (pdf) og Hlustun.

Umsækjendur með annað móðurmál en ensku þurfa að sýna fram á enskukunnáttu (TOEFL 79 / IELTS 6,5 / PTE 58).

Undanþágur:
Umsækjendur 25 ára og eldri sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði en hafa lokið að lágmarki 90 einingum (140 fein) á framhaldsskólastigi geta sótt um undanþágu.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.

Skiptinám

Allir nemendur eiga kost á að taka hluta af námi sínu við erlenda samstarfsháskóla. Þú færð niðurfellingu á skólagjöldum gestaskólans og greiðir eingöngu innritunargjald í HA. Alþjóðafulltrúi aðstoðar þig við að sækja um námið, húsnæði og nemendastyrk.

Þú getur smellt hér og lesið meira um skiptinám.

Umsagnir

Grunnnám mitt í félagsvísindum undirbjó mig vel undir rannsóknatengt meistaranám í félagavísindum og er hvoru tveggja frábær aðferðafræðilegur grunnur fyrir doktorsnám, sem ég stefni á. Það var mikið lagt upp með sjálfstæð vinnubrögð og náminu fylgdi frelsi til að beina sjónum mínum að mínu áhugasviði. Allt utanumhald var til fyrirmyndar. Ég lærði mikið og þróaði með mér vinnubrögð sem nýtast vel í starfi mínu í dag.

Alfa Jóhannsdóttir
Forvarnarfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga