Námið veitir traustan undirbúning til starfa í leikskólum.

Markmiðið er að veita þekkingu á undirstöðuþáttum kennslu. Jafnframt að leggja grunn að þeirri færni sem þarf til að þróa og móta skóla, iðka rannsóknir og stunda frekara nám.

Auk leikskólakennarafræði er stutt en hagnýtt íslenskunám. Þú færð góðan grunn í íslenskri málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða. Auk þess að öðlast skilning á íslensku samfélagi og menningu.

Tengdar námsleiðir:

Er námið fyrir þig

  • Langar þig að hafa jákvæð áhrif á börn og ungmenni?
  • Hefur þú áhuga á uppeldi, námi og þróun skólastarfs?
  • Nýtur þú þess að miðla þekkingu og styðja aðra til árangurs?
  • Átt þú auðvelt með samstarf og samskipti?
  • Getur þú sett þig í spor annarra og sýnt þolinmæði?
  • Langar þig að geta bjargað þér á íslensku í daglegu lífi?
  • Vilt þú auka möguleika þína á virkri þátttöku í íslensku samfélagi?

Áherslur náms í leikskólakennarafræði

BEd-nám í kennarafræði er fyrri hluti fimm ára náms til MEd-gráðu, sem veitir kennsluréttindi.

Fyrsta námsárið er að mestu sameiginlegt öllum kennaranemum en sérhæfing eykst á öðru og þriðja námsári með valgreinum og aukinni áherslu á viðkomandi skólastig.

Námið leggur áherslu á:

  • kennslufræði og fagþekkingu
  • samskipti og samstarf
  • þróun skólastarfs og rannsóknarvinnu
  • gagnrýna hugsun og faglegt sjálfstæði

Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.

Áherslur náms í íslensku

Stutt en hagnýtt diplómanám í íslensku sem annað mál, sérstaklega fyrir þau sem hafa lítinn grunn í íslensku en langar að geta bjargað sér á tungumálinu í daglegu lífi. Lögð er áhersla á tal, tjáningu og hlustun.

Þú munt öðlast færni í munnlegum og skriflegum samskiptum á íslensku ásamt góðum grunn í málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða.

Miðað er að því að þú munir geta tjáð þig við almennar aðstæður daglegs lífs, skilið umræðu um hversdagslega hluti og lesið og skilið einfalda texta.

Þú munt þurfa að mæta í rafræna tíma fjóra morgna eða síðdegis í hverri viku í 2 klukkustundir.

Þú getur skoðað skipulag námsins í Uglu, kennsluvef háskólans.

Sveigjanlegt nám

Allt grunnnám við HA er sveigjanlegt og hentar bæði þeim sem vilja vera á staðnum og þeim sem kjósa fjarnám. Allir fylgja sömu námskrá og kröfum um frammistöðu.

  • Flestir fyrirlestrar og verkefni eru aðgengileg á kennsluvef
  • Skyldumæting er í 2 stuttar námslotur á misseri á Akureyri
  • Í mörgum námskeiðum er símat, svo námsmat fer að hluta eða öllu leyti fram utan hefðbundinnar prófatíðar
  • Skrifleg próf fara fram á Akureyri eða á viðurkenndum prófstöðum

Stúdentum sem vilja þreyta próf annars staðar er bent á að kynna sér vel hvaða staði er um að ræða og þær reglur sem um slíkt gilda.

Athugið að fullt háskólanám jafngildir að jafnaði 50–60 stunda vinnuviku.

Möguleikar að námi loknu

Markmið námsins er að veita þér alhliða innsýn í kennarafræði.

BEd-próf veitir ekki sjálfstæð kennsluréttindi en er nauðsynlegur undirbúningur fyrir framhaldsnám til kennsluréttinda (MEd eða MT).

Námið veitir einnig góðan grunn fyrir störf innan menntakerfisins og á almennum vinnumarkaði.

Námið veitir aðgang að framhaldsnámi í:

Félagslífið

Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms og er félagslíf nemenda við HA öflugt.

Allir nemendur við háskólann eru í Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA) en einnig er hver deild með sitt nemendafélag. Magister er félag kennaranema og þú getur nálgast nánari upplýsingar um félagið á Facebook.

Inntökuskilyrði

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi, jafngildu erlendu prófi eða 60 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla.

Tungumálapróf:

Allir umsækjendur þurfa að standast inntökupróf í íslensku sem haldið er 10. júní kl. 12:00–13:30 (tekur 90 mín). Próftökugjald er 15.000 kr.

Prófið er hægt að taka við HA, HÍ eða í viðurkenndum prófamiðstöðvum (aðstöðugjöld kunna að bætast við). Það metur grunnfærni í lesskilningi og hlustun.

Dæmi um próf:  Lesskilningur (pdf) og Hlustun.

Umsækjendur með annað móðurmál en ensku þurfa að sýna fram á enskukunnáttu (TOEFL 79 / IELTS 6,5 / PTE 58).

Undanþágur:
Umsækjendur 25 ára og eldri sem hafa lokið að minnsta kosti 90 einingum á framhaldsskólastigi geta komið til skoðunar ef pláss leyfir. Undanþága veitir heimild til nýskrásetningar á viðkomandi háskólaári.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.

Skiptinám

Allir nemendur eiga kost á að taka hluta af námi sínu við erlenda samstarfsháskóla. Þú færð niðurfellingu á skólagjöldum gestaskólans og greiðir eingöngu innritunargjald í HA. Alþjóðafulltrúi aðstoðar þig við að sækja um námið, húsnæði og nemendastyrk.

Þú getur smellt hér og lesið meira um skiptinám.

Umsagnir

Grunnnámið í kennarafræðum er skemmtilegt og fjölbreytt nám sem undirbjó mig vel undir framhaldsnám og starf mitt sem kennari. Námið er perónulegt þar sem þú kynnist kennurum og samnemendum vel. Sveigjanleikinn í náminu er stór kostur sem nýttist mér vel í náminu sjálfu og sérstaklega eftir að ég fór að starfa sem kennari samhliða námi.

Arnór Heiðmann Aðalsteinsson
Umsjónarkennari við Borgarhólsskóla á Húsavík