Viltu skilja nútímann og hvernig hann varð til?

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í nútímafræði. Í náminu rýnir þú í hugmyndir, gildi og samfélagsbreytingar sem móta heiminn í dag. Þú lærir að skoða samtímann með gagnrýnum augum og tengja saman sögu, menningu og samfélag.

Auk nútímafræði er stutt en hagnýtt íslenskunám. Þú færð góðan grunn í íslenskri málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða. Auk þess að öðlast skilning á íslensku samfélagi og menningu.

Tengdar námsleiðir:

Er námið fyrir þig

  • Hefur þú áhuga á hitamálum samtímans?
  • Viltu skilja hvernig íslensk og vestræn samfélög þróuðust?
  • Langar þig að verða meðvitaður og gagnrýninn borgari?
  • Hefur þú áhuga á menningu, sögu og hugmyndum?
  • Viltu þjálfa þig í að miðla efni og rökstyðja skoðanir?
  • Langar þig að geta bjargað þér á íslensku í daglegu lífi?
  • Vilt þú auka möguleika þína á virkri þátttöku í íslensku samfélagi?

Áherslur náms í nútímafræði

Námið er þverfaglegt og byggir á heimspeki, siðfræði, sagnfræði, samfélagsgreinum og íslensku.

Þú færð heildstæða mynd af nútímasamfélaginu – því samfélagsformi sem mótaðist á Vesturlöndum frá 18. öld og hefur haft djúpstæð áhrif á heiminn í dag. Fjallað er um helstu hugmyndir, átök og breytingar sem hafa mótað samtímann.

Í náminu:

  • þjálfar þú gagnrýna hugsun
  • lærir vísindaleg vinnubrögð
  • æfir þig í greiningu og framsetningu röksemda

Þú lýkur 120 ECTS í skyldunámskeiðum og 60 ECTS í valnámskeiðum.

Þú getur skoðað skipulag námsins neðar á síðunni og í Uglu, kennsluvef háskólans.

Áherslur náms í íslensku

Stutt en hagnýtt diplómanám í íslensku sem annað mál, sérstaklega fyrir þau sem hafa lítinn grunn í íslensku en langar að geta bjargað sér á tungumálinu í daglegu lífi. Lögð er áhersla á tal, tjáningu og hlustun.

Þú munt öðlast færni í munnlegum og skriflegum samskiptum á íslensku ásamt góðum grunn í málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða.

Miðað er að því að þú munir geta tjáð þig við almennar aðstæður daglegs lífs, skilið umræðu um hversdagslega hluti og lesið og skilið einfalda texta.

Þú munt þurfa að mæta í rafræna tíma fjóra morgna eða síðdegis í hverri viku í 2 klukkustundir.

Þú getur skoðað skipulag námsins neðar á síðunni og í Uglu, kennsluvef háskólans.

Sveigjanlegt nám

Grunnnám í nútímafræði er sveigjanlegt og hentar bæði þeim sem vilja vera á staðnum og þeim sem kjósa fjarnám. Allir fylgja sömu námskrá og kröfum um frammistöðu.

Þú getur tekið þátt í kennslu í rauntíma, annað hvort í kennslustofu eða í gegnum gagnvirkan fjarfundarbúnað. Flestir fyrirlestrar eru teknir upp og aðgengilegir á kennsluvef, þannig að þú getur horft á þá þegar þér hentar. Í einstaka námskeiðum taka allir stúdentar þátt í kynningum og umræðum í rauntíma.

Fjarnemar koma yfirleitt einu sinni á misseri í stuttar námslotur til Akureyrar þar sem áhersla er lögð á verkefnavinnu og umræður. Þar gefst tækifæri til að hitta kennara og samnemendur og tengjast enn betur háskólasamfélaginu þínu.

Vinsamlega athugið að hver vika í fullu háskólanámi er ígildi 50-60 stunda vinnuviku.

Möguleikar að námi loknu

Að námi loknu býrð þú yfir víðtækri þekkingu á þróun og uppbyggingu nútímasamfélags. Þú hefur sterka greiningarhæfni, ritfærni og hæfni til að miðla flóknum hugmyndum á skýran hátt. 

Með aukinni íslenskukunnáttu eykur þú möguleika þína á íslenskum vinnumarkaði.

Brautskráðir nemendur úr nútímafræði starfa meðal annars við:

  • menningarmál og safnastarf
  • kennslu og fræðslu
  • fjölmiðlun og upplýsingamiðlun
  • stjórnsýslu og verkefnastjórnun

Námið veitir einnig traustan grunn fyrir framhaldsnám í hug- og félagsvísindum, til dæmis í sagnfræði, siðfræði eða mannfræði.

Félagslífið

Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms og er félagslíf nemenda við HA öflugt.

Allir nemendur við háskólann eru í Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA) en einnig er hver deild með sitt nemendafélag. Kumpáni er félag félagsvísindanema og þú getur nálgast nánari upplýsingar um félagið á Facebook.

Inntökuskilyrði

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi, jafngildu erlendu prófi eða 60 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla. Eða aðrar forsendur til náms sem Félagsvísindadeild metur fullnægjandi.

Tungumálapróf:

Allir umsækjendur þurfa að standast inntökupróf í íslensku sem haldið er 10. júní kl. 12:00–13:30 (tekur 90 mín). Próftökugjald er 15.000 kr.

Prófið er hægt að taka við HA, HÍ eða í viðurkenndum prófamiðstöðvum (aðstöðugjöld kunna að bætast við). Það metur grunnfærni í lesskilningi og hlustun.

Dæmi um próf: Lesskilningur (pdf) og Hlustun.

Umsækjendur með annað móðurmál en ensku þurfa að sýna fram á enskukunnáttu (TOEFL 79 / IELTS 6,5 / PTE 58).

Undanþágur:
Umsækjendur 25 ára og eldri sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði en hafa lokið að lágmarki 90 einingum (140 fein) á framhaldsskólastigi geta sótt um undanþágu.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.

Skiptinám

Þú getur tekið hluta námsins við erlenda samstarfsháskóla.

Þú greiðir eingöngu innritunargjald í HA og færð niðurfellingu á skólagjöldum við gestaskóla. Alþjóðafulltrúi aðstoðar þig við umsóknir, húsnæði og upplýsingar um styrki.

Þú getur smellt hér og lesið meira um skiptinám.

Umsagnir

Í nútímafræðinni fékk ég góða þjálfun í gagnrýninni hugsun og öguðum vinnubrögðum. Námið opnaði á ný tækifæri og reyndist góður undirbúningur fyrir framhaldsnám mitt í menningarstjórnun og þau störf sem ég hef sinnt, til að mynda sem menningarfulltrúi Eyþings, framkvæmdastjóri aldarafmælis fullveldis Íslands og sveitarstjóri.

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir
Sjálfstætt starfandi sérfræðingur