Í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri skoðar þú stöðu og áhrif fjölmiðla og samfélagsmiðla í heimi hraðra tæknibreytinga, gervigreindar og stöðugs upplýsingaflóðs. Upplýsingaóreiða og falsfréttir eru raunveruleg áskorun. Þörfin fyrir gagnrýna greiningu og faglega miðlun hefur sjaldan verið meiri.

Námið veitir þér sterkan grunn í félags- og hugvísindum með sérstakri áherslu á fjölmiðlun, eðli hennar og áhrif. Samhliða fræðilegri dýpt færð þú verklega þjálfun í að skapa fjölmiðlaefni. Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á BA-próf í fjölmiðlafræði.

Auk fjölmiðlafræði er stutt en hagnýtt íslenskunám. Þú færð góðan grunn í íslenskri málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða. Auk þess að öðlast skilning á íslensku samfélagi og menningu.

Tengdar námsleðir:

Er námið fyrir þig?

  • Viltu opna á fjölbreytta og spennandi valkosti að námi loknu?
  • Hefur þú áhuga á fólki og hvaðan hugmyndir þess koma?
  • Langar þig að vinna við miðlun, fjölmiðla eða samskipti?
  • Hefur þú gaman af því að skilja flókin mál og grafa undir yfirborðið?
  • Langar þig að geta bjargað þér á íslensku í daglegu lífi?
  • Vilt þú auka möguleika þína á virkri þátttöku í íslensku samfélagi?

Áherslur náms í fjölmiðlafræði

Markmið námsins er að efla hæfni þína til að takast á við breytingar sem fylgja hraðri tækniþróun og umbreytingu miðlunar.

Námið byggir á fræðilegum grunni og verklegri nálgun. Í náminu eru:

  • fjölmiðlar settir í samfélagslegt samhengi
  • lagaleg og siðferðileg álitaefni fjölmiðlunar tekin til skoðunar
  • áhrif samfélagsmiðla og stafrænnar tækni greind
  • fæst innsýn í hvernig fjölmiðlaefni er skapað og miðlað

Námið þróast í takt við samfélagsbreytingar og nýja miðlunartækni.

Þú getur skoðað skipulag námsins neðar á síðunni og í Uglu, kennsluvef háskólans.

Áherslur náms í íslensku

Stutt en hagnýtt diplómanám í íslensku sem annað mál, sérstaklega fyrir þau sem hafa lítinn grunn í íslensku en langar að geta bjargað sér á tungumálinu í daglegu lífi. Lögð er áhersla á tal, tjáningu og hlustun.

Þú munt öðlast færni í munnlegum og skriflegum samskiptum á íslensku ásamt góðum grunn í málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða.

Miðað er að því að þú munir geta tjáð þig við almennar aðstæður daglegs lífs, skilið umræðu um hversdagslega hluti og lesið og skilið einfalda texta.

Þú munt þurfa að mæta í rafræna tíma fjóra morgna eða síðdegis í hverri viku í 2 klukkustundir.

Þú getur skoðað skipulag námsins neðar á síðunni og í Uglu, kennsluvef háskólans.

Sveigjanlegt nám

Grunnnám í félagsvísindum er sveigjanlegt og hentar bæði þeim sem vilja vera á staðnum og þeim sem kjósa fjarnám. Allir fylgja sömu námsskrá og kröfum um frammistöðu.

Þú getur tekið þátt í kennslu í rauntíma, annað hvort í kennslustofu eða í gegnum gagnvirkan fjarfundarbúnað. Flestir fyrirlestrar eru teknir upp og aðgengilegir á kennsluvef, þannig að þú getur horft á þá þegar þér hentar. Í einstaka námskeiðum taka allir stúdentar þátt í kynningum og umræðum í rauntíma.

Fjarnemar koma 1-2 á misseri í stuttar námslotur til Akureyrar þar sem áhersla er lögð á verkefnavinnu og umræður. Þar gefst tækifæri til að hitta kennara og samnemendur og tengjast enn betur háskólasamfélaginu þínu.

Skyldumæting er í námsloturnar, því er mikilvægt að kynna sér dagsetningar vel, en þær eru birtar með góðum fyrirvara.

Möguleikar að námi loknu

Fjölmiðlafræði veitir breiðan grunn í greiningu, miðlun og gagnrýnni hugsun, hæfni sem er eftirsótt á vinnumarkaði.

Með aukinni íslenskukunnáttu eykur þú möguleika þína á íslenskum vinnumarkaði.

Brautskráðir nemendur úr fjölmiðlafræði starfa meðal annars:

  • hjá fjölmiðlum
  • sem fjölmiðlafulltrúar fyrirtækja og stofnana
  • við markaðs- og kynningarmál
  • í upplýsingamiðlun og stefnumótun

Námið er einnig góður undirbúningur fyrir framhaldsnám, til dæmis í fjölmiðla- og boðskiptafræði, markaðsfræði, stjórnmálafræði eða öðrum greinum félagsvísinda.

Félagslífið

Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms og er félagslíf nemenda við HA öflugt.

Allir nemendur við háskólann eru í Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA) en einnig er hver deild með sitt nemendafélag. Kumpáni er félag félagsvísindanema og þú getur nálgast nánari upplýsingar um félagið á Facebook.

Inntökuskilyrði

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi, jafngildu erlendu prófi eða 60 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla. Eða aðrar forsendur til náms sem Félagsvísindadeild metur fullnægjandi.

Tungumálapróf:

Allir umsækjendur þurfa að standast inntökupróf í íslensku sem haldið er 10. júní kl. 12:00–13:30 (tekur 90 mín). Próftökugjald er 15.000 kr.

Prófið er hægt að taka við HA, HÍ eða í viðurkenndum prófamiðstöðvum (aðstöðugjöld kunna að bætast við). Það metur grunnfærni í lesskilningi og hlustun.

Dæmi um próf: Lesskilningur (pdf) og Hlustun.

Umsækjendur með annað móðurmál en ensku þurfa að sýna fram á enskukunnáttu (TOEFL 79 / IELTS 6,5 / PTE 58).

Undanþágur:
Umsækjendur 25 ára og eldri sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði en hafa lokið að lágmarki 90 einingum (140 fein) á framhaldsskólastigi geta sótt um undanþágu.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.

Skiptinám

Allir nemendur eiga kost á að taka hluta af námi sínu við erlenda samstarfsháskóla. Þú færð niðurfellingu á skólagjöldum gestaskólans og greiðir eingöngu innritunargjald í HA. Alþjóðafulltrúi aðstoðar þig við að sækja um námið, húsnæði og nemendastyrk.

Þú getur smellt hér og lesið meira um skiptinám.

Umsagnir

Fjölmiðlafræðin er áhugavert, fjölbreytt og skemmtilegt nám, bæði fræðilegt og verklegt. Það býr mann vel undir framtíðina, hvort sem þú hyggur á starf eða frekara nám á sviði fjölmiðla.

Sigurður Þorri Gunnarsson
Tónlistarstjóri Rásar 2