Námskeið og örfyrirlestrar

Námskeið

Náms- og starfsráðgjöf Háskólans á Akureyri býður upp á námskeið sem eru aðgengileg í kennslukerfum HA.

Almenn námstækni

Námstækni þjálfar stúdenta í vinnubrögðum sem virka vel í námi. Námstæknisíðuna er að finna á Canvas og er hún opin öllum stúdentum HA gjaldfrjálst. Þar er til dæmis farið yfir:

  • Tímaskipulag og markmiðasetning
  • Lestrar-, glósu- og minnistækni
  • Frestun og líðan
  • Undirbúningur fyrir próf

Prófkvíðanámskeið

Náms- og starfsráðgjöf býður upp á netnámskeið við prófkvíða gegn vægu gjaldi. Námskeiðið er aðgengilegt á kennslukerfinu Canvas. Þú getur tekið það hvenær sem er og á eigin hraða.

Á námskeiðinu lærir þú hvað kvíði er og hvernig þú getur stjórnað honum.

  • Kvíðahugtakið skoðað
  • Farið yfir kvíðastjórnun
  • Bjargráð við prófkvíða

Skráning á prófkvíðanámskeið

  • Kostar 5000 kr.
  • Reikningsnúmer: 0162-26-6610
  • Kennitala: 520687-1229
  • Sendið kvittun á radgjof@unak.is, merkta námskeiðinu sem greitt er fyrir (prófkvíðanámskeið). Þá fáið þið aðgang að því á vefkennslukerfi HA.

Athugið:

  • Til þess að sækja um sérúrræði vegna prófkvíða þarf að fylla út prófkvíðakvarða hjá ráðgjafa og ljúka þessu námskeiði. 
  • Vegna haustmisserisprófa fyrir 15. október og vegna vormisserisprófa fyrir 15. mars.

Örfyrirlestrar

Stuttir og fjölbreyttir fyrirlestrar um ýmis málefni, til dæmis:

  • Hvernig þú sameinar háskólanám og fjölskyldulíf
  • Próftökutækni
  • Markmiðasetningu og tímastjórnun
  • Frestun
  • Helstu þætti í námstækni og góðum vinnubrögðum
  • Almenna líðan og geðheilbrigði

Þessir fyrirlestrar eru aðgengilegir öllum stúdentum HA, bæði á staðnum og í Zoom.