Á þessari námslínu öðlast þú dýpri þekkingu og sérhæfinu á sviði krabbameins- og líknarmeðferðar. Krabbameinstilfellum hefur farið fjölgandi og stöðugar framfarir í heilbrigðisvísindum kalla á aukna þekkingu heilbrigðisstarfsmanna.

Áhersla er á að þú öðlist þekkingu til að takast á við áskoranir sem bíða í þjónustu við einstaklinga með krabbamein eða þá sem þurfa á líknarmeðferð að halda.

Námið veitir prófgráðuna meistarapróf í heilbrigðisvísindum með áherslu á krabbamein og líknarmeðferð.

Er námið fyrir þig?

  • Viltu dýpka skilning þinn á sviði krabbameins- og líknarmeðferðar?
  • Viltu auka við sérþekkingu þína?
  • Hefur þú áhuga á rannsóknum?
  • Langar þig að auka víðsýni þína?

Áherslur námsins

Ásta Bjarney Pétursdóttir, umsjónarkennari námskeiðis aðstoðar þig við að setja þér markmið innan námslínunnar og velja saman námskeið.

Skyldunámskeið námslínunnar eru fjögur, samtals 40 ECTS einingar. Meistararitgerðin er 60 ECTS einingar og þú hefur val um námskeið upp að 20 ECTS einingum.

Þú getur skoðað skipulag námsins á Uglu, kennsluvef háskólans.

Fyrirkomulag námsins

Námið er skipulagt þannig að mögulegt er að stunda vinnu samhliða því. Nemendur vinna verkefni í stað prófa.

Diplóma- og meistaranemendur eru hvattir til að mæta í allar lotur í námskeiðum. Til að standast lágmarkskröfur námskeiðs við framhaldsnámsdeild heilbrigðisvísindasviðs HA þarf nemandi að mæta í að minnsta kosti tvær* af þremur lotum í hverju námskeiði sem hann er skráður í.

Umsjónarkennara námskeiðs er frjálst að setja kröfu um mætingu í einhverja ákveðna lotu eða allar þrjár loturnar í námskeiði. Þessar kröfur geta verið mismunandi á milli námskeiða.

Mæting miðar við að mæta á staðinn eða með samþykki umsjónarkennara viðkomandi námskeiðs að mæta í gegnum Fjærveru eða Zoom. Ath. nemandi þarf að fá þjálfun hjá Kennslumiðstöð HA til að geta nýtt sér Fjærveru sem mætingu í námskeið.

*Ef nemandi getur af heilsufarsástæðum ekki mætt í lotu verður viðkomandi að hafa samband fyrirfram við umsjónarkennara námskeiðs og skila vottorði til skrifstofustjóra heilbrigðisvísindasviðs, fari umsjónarkennari fram á það. Umsjónarkennari ákvarðar hvaða viðbótarverkefni nemandi þarf að gera í stað mætingarinnar til að standast lágmarkskröfur námskeiðs.

Þú getur tekið meistaranámskeið við Háskólann á Akureyri eða aðra háskóla, innanlands eða utan.

Möguleikar að námi loknu

Brautskráðir nemendur með meistaranám í heilbrigðisvísindum fara í stjórnunarstörf innan heilbrigðiskerfisins, starfa sjálfstætt eða eru í stöðum sérfræðinga.

Námið er undirbúningur fyrir þá sem hyggja á doktorsnám.

Inntökuskilyrði

Umsækjendur um meistara- og diplómanám þurfa að hafa lokið bakkalárgráðu á sviði heilbrigðisvísinda eða skyldra greina með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) frá viðurkenndum háskóla. Ef til aðgangstakmarkana kemur við innritun ganga þeir umsækjendur fyrir sem hafa 2 ára starfsreynslu úr heilbrigðis- eða velferðargeiranum. Mikilvægt er að öll umbeðin gögn svo sem staðfest afrit af prófskírteinum, ferilskrá, kynningarbréf og starfsvottorð ef við á fylgi með umsókn.

Umsagnir

Námið er fjölbreytt og krefjandi og með góða möguleika á sérhæfingu á sínu sviði. Unnin eru verkefni í stað prófa og því hægt að vinna verkefni tengd sínu áhugasviði þvert á námskeið. Flest mín verkefni snéru að líknar- og lífslokameðferð og nýtist það einstaklega vel í starfi mínu á Heilsuvernd Hjúkrunarheimili.

Silja Jóhannesdóttir
Hjúkrunarfræðingur á Heilsuvernd Hjúkrunarheimili