Bakslag í mannréttindum, samspil gervigreindar og kynjajafnréttis og kynfrelsis, inngilding skynsegin nema og nemenda af ólíkum uppruna í háskólum, veruleiki hinsegin nemenda og samband kynjajafnréttis og friðar er meðal þess sem verður til umfjöllunar á hinum árlegu Jafnréttisdögum sem fara fram 9.-12. febrúar í háskólum landsins.
Alls verða í boði rúmlega 30 viðburðir um nær allar hliðar jafnréttismála, bæði fyrirlestrar, umræðufundir, gjörningar og list- og leiksýningar. Dagskráin er ýmist á íslensku eða ensku og mikil áhersla er á gott aðgengi að viðburðum, hvort sem þeir fara fram í streymi eða á staðnum.
Markmið Jafnréttisdaga, sem nú eru haldnir í 18. sinn, er að skapa umræðu um jafnréttismál á Íslandi þar sem bæði er tekið mið af tíðaranda og nýjustu rannsóknum innan fræðanna. Þannig snerta viðburðirnir kyn og femínisma, hinseginleika, uppruna og rasisma, fötlun, ableisma og algilda hönnun, hatur og mismunun og fordóma og forréttindi.
Óhætt er að fullyrða að öll eigi að finna eitthvað við sitt hæfi á Jafnréttisdögunum en auk ofangreindra viðfangsefna verður rýnt í staðalímyndir og fordóma innan háskólasamfélagsins, félagslegan ójöfnuð, íslensku sem annað mál, fjölgun karla í hjúkrunarfræði, samfélagsleg áhrif skapandi greina, afglæpavæðingu þungunarrofs og fötlunar- og hinseginfræði í sviðslistum.
Í Háskólanum á Akureyri fara fram eftirfarandi viðburðir í vikunni:
- Mánudaginn 9. febrúar: Þarf alltaf að gera eitthvað mál úr þessu? – Veruleiki hinsegin nemenda í íslenskum skólasamfélögum. ERGI – Félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi & fulltrúar samtaka hinsegin nemenda VMA og MA standa fyrir pallborðsumræðum þar sem sjónum er beint að upplifunum, áskorunum og þröskuldum hinsegin nemenda í skólasamfélögum og innan menntakerfisins. Viðburðurinn fer fram bæði á staðnum og í streymi kl. 16:30 – 17:30 í M101. Þátttakendur eru hvattir til þess að taka þátt í umræðum. Velkomið er að spyrja á íslensku eða ensku.
- Þriðjudaginn 10. febrúar: Máttur félagsfræðinnar: Innsýn í ójafnan heim. Guðmundur Oddsson, prófessor í félagsfræði, mun fjalla um kennslubókina The Power of Sociology: Grasping Our Unequal World eftir hann, Jenny M. Stuber og James M. Thomas sem kom út í janúar síðastliðnum á vegum SAGE háskólaútgáfunnar. Í erindinu verður stiklað á stóru um efni bókarinnar og staldrað við ýmsar birtingarmyndir ójafnaðar og valdaójafnvægis. Viðburðurinn fer fram bæði á staðnum og í streymi kl. 11:00 – 12:00 í M101.
- Fimmtudaginn 12. febrúar: Jafnréttisvöfflur. Jafnréttisráð býður í vöfflukaffi í Miðborg í Háskólanum á Akureyri milli klukkan 09:15-10:00. Þar verða jafnframt afhentar jafnréttisviðurkenningar jafnréttisráðs.
- Fimmtudaginn 12. febrúar: Málþingið „Hvað er inngildandi háskólaumhverfi?“ mun fara fram í M101 og í streymi, milli kl. 10:00 og 11:30. Þar munu Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki, Sigríður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri náms fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir, Karen Alda Mikaelsdóttir nemandi, Katrín Elva Ásgeirsdóttir nemandi, Lay Fraser, fulltrúi ERGI – félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi og Lara Wilhelmine Hoffmann, nýdoktor og sérfræðingur, flytja erindi. Erindin fara fram bæði á íslensku og ensku. Að þeim loknum fara fram panelumræður. Fundarstjóri er Katla Ósk Káradóttir, fulltrúi stúdenta í jafnréttisráði HA.
- Föstudaginn 13. febrúar: Fjölgun karla í hjúkrunarnámi: Staðan á stöðunni. Hlaðvarp í umsjón Dr. Eydísar Kristínar Sveinbjarnardóttur, prófessors við HÍ, og Dr. Gísla Kort Kristóferssonar, prófessors við HA. Í hlaðvarpinu segja þau Eydís og Gísli frá ýmsum verkefnum sem þau hafa tekið þátt í og gengið hafa út á að fjölga körlum í hjúkrunarfræði og hvað megi læra af niðurstöðum þeirra. Hlaðvarpið fer í loftið kl. 12 og verður aðgengilegt á Youtube rás Jafnréttisdaga.
Eftirfarandi viðburðir eru skipulagðir í samstarfi við aðra háskóla:
- Mánudaginn 9. febrúar: Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina? Panelumræður um mótandi áhrif skapandi greina. Þátttakendur eru Hlynur Jónasson, umsjónarmaður Kúnstpásu, Lara Hoffmann nýdoktor og Martyna Karolina Daniel, verkefnastjóri aðgengis og samfélagslegrar þátttöku á Borgarbókasafninu. Viðburðurinn fer fram sem staðviðburður þann 5. febrúar kl. 8.30-10 í húsnæði CCP, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, 3. hæð. Upptaka frá viðburðinum fer síðan í loftið 9. febrúar kl. 15 og verður aðgengileg á heimasíðu og Youtube rás Jafnréttisdaga. Um er að ræða samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Listaháskólans og Háskólans á Bifröst.
- Þriðjudaginn 10. febrúar: Gervigreind, snjalltæki og kynfrelsi – er Sjallasleikurinn dauður? Hlaðvarp í umsjón Dr. Grétu Bergrúnar Jóhannesdóttur, sérfræðings við Háskólann á Bifröst. Í hlaðvarpinu ræðir Gréta við Magnús Smára Smárason, verkefnastjóra gervigreindar við Háskólann á Akureyri, og Bergrós Ástu Guðmundsdóttur, nema við MA og handboltakonu í meistaraflokki KA/Þórs, um áhrif gervigreindar á kynfrelsi í nútímasamfélagi. Hlaðvarpið fer í loftið kl. 10 og verður aðgengilegt á Youtube rás Jafnréttisdaga. Um er að ræða samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst.
Hægt er að kynna sér dagskrá Jafnréttisdaga á jafnrettisdagar.is en þar er jafnframt að finna hlaðvarpsefni og upptökur frá Jafnréttisdögum fyrri ára.
Öll velkomin á Jafnréttisdaga!