Laust er til umsóknar fullt starf náms- og starfsráðgjafa við Nemendaráðgjöf Háskólans á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri leggur metnað sinn í að vera nútímaháskóli með nútímaaðferðir í kennslu og ráðgjöf. Í HA er allt nám í sveigjanlegu námsumhverfi og stoðþjónusta miðuð að stúdentum óháð búsetu. Nemendaráðgjöf heyrir undir náms- og kennsluþjónustu Háskólans á Akureyri. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Nemendaráðgjafar. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.
Starfið er tímabundið til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Náms- og starfsráðgjöf fyrir háskólastúdenta og umsækjendur
- Stuðningur við nemendur, einstaklings- og hópráðgjöf
- Umsjón og fræðsla á námskeiðum, fyrirlestrum, vinnustofum og kynningum á vegum nemendaráðgjafar
- Umsjón og þjónusta vegna úrræða í námi
- Samstarf við starfseiningar innan HA, aðrar menntastofnanir og fagaðila
Hæfniskröfur
- MA próf á sviði náms- og starfsráðgjafar og leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi
- Reynsla af náms- og starfsráðgjöf, reynsla af háskólaumhverfi kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni í að koma fram og halda kynningar og námskeið
- Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
- Þekking og áhugi á nýjungum í náms- og starfsráðgjöf
- Reynsla af gerð námskeiða og námskeiðshald í náms- og starfsráðgjöf er kostur
- Réttindi til að leggja fyrir áhugasviðskönnunina Bendil er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
Umsókn skal fylgja
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda
- Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf. Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
María Jónsdóttir, forstöðumaður nemendaráðgjafar, tölvupóstur: mariajons@unak.is og sími: 460 8049.
Sækja um starf