Í náminu er lögð áhersla á að fræðast um mannlega hegðun, hugsun og tilfinningar. Sálfræðinámið er víðtækt og opnar margar dyr til starfa og frekara náms.

Sérstaða sálfræðinámsins við Háskólann á Akureyri felst í sveigjanlegu námi og námsmati.

Námsmat er fjölbreytt. Í flestum námskeiðum eru lokapróf í bland við annað námsmat sem felst meðal annars í hlutaprófum, verkefnum, umræðum, sýnikennslu, tilraunum og rannsóknum á vettvangi.

Auk sálfræði er stutt en hagnýtt íslenskunám. Þú færð góðan grunn í íslenskri málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða. Auk þess að öðlast skilning á íslensku samfélagi og menningu.

Tengdar námsleiðir:

Er námið fyrir þig?

  • Vilt þú læra að beita aðferðum raun- og félagsvísinda til að skilja mannlegt atferli?
  • Vilt þú læra um þroska barna og vandamál sem fylgja ellinni?
  • Vilt þú öðlast færni og gagnrýna hugsun sem nýtist í starfi og daglegu lífi?
  • Hefur þú áhuga á að vinna náið með fólki?
  • Viltu kynnast aðferðum til að rannsaka og breyta hegðun á kerfisbundinn hátt?
  • Langar þig að geta bjargað þér á íslensku og tekið virkan þátt í íslensku samfélagi?

Áherslur náms í sálfræði

Sálfræði við HA er spennandi og krefjandi nám sem gefur þér tækifæri til að öðlast grunnþekkingu á mörgum sviðum sálfræðinnar. Í náminu er mikil áhersla lögð á rannsóknaraðferðir, tölfræði og mælifræði, og þú færð tækifæri til að taka þátt í rannsóknum sem þátttakandi og rannsakandi.

Þú kynnist fjölmörgum sviðum sálfræðinnar, frá virkni taugafruma upp í hegðun fólks í hópum. Þarna á milli eru spennandi viðfangsefni á borð við: skynhrif og skynjun, virkni meðvitundar, persónuleika, minni og nám, geðkvilla og meðferð þeirra, virkni lyfja á hegðun, atferlisgreiningu, þroska frá vöggu til grafar, gerð prófa og spurningalista, frammistöðu í íþróttum og á vinnustöðum, og fleira til.

Tungumálahæfni

Námið fer fram á ensku og íslensku. Lesefni er að langmestu leyti á ensku, en kennsla ýmist á ensku eða íslensku. Því er æskilegt að umsækjendur búi yfir hæfni í þessum tungumálum sem samsvarar að minnsta kosti B2 í evrópska tungumálarammanum. Umsækjendur bera sjálfir ábyrgð á að meta eigin tungumálakunnáttu.

Áherslur náms í íslensku

Stutt en hagnýtt diplómanám í íslensku sem annað mál, sérstaklega fyrir þau sem hafa lítinn grunn í íslensku en langar að geta bjargað sér á tungumálinu í daglegu lífi. Lögð er áhersla á tal, tjáningu og hlustun.

Þú munt öðlast færni í munnlegum og skriflegum samskiptum á íslensku ásamt góðum grunn í málfræði, setningafræði og aukinn orðaforða.

Miðað er að því að þú munir geta tjáð þig við almennar aðstæður daglegs lífs, skilið umræðu um hversdagslega hluti og lesið og skilið einfalda texta.

Þú munt þurfa að mæta í rafræna tíma fjóra morgna eða síðdegis í hverri viku í 2 klukkustundir.

Möguleikar að námi loknu

Námið opnar margar dyr. Brautskráðir stúdentar vinna fjölbreytt störf, meðal annars á sviði rannsókna, menntunar, ráðgjafar, umönnunar, forvarna og í viðskiptalífinu.

Námið opnar leið að framhaldsnámi á mörgum sviðum sálfræðinnar og tengdum greinum eins og í mannauðsstjórnun, fjölskylduráðgjöf, talmeinafræði, lýðheilsuvísindum, náms- og starfsráðgjöf og mörgum fleiri. Sálfræðimenntað fólk er einnig vinsælir starfskraftar í markaðsdeildum fyrirtækja og auglýsingastofa og í ýmis konar gagnagreiningarvinnu.

Með aukinni íslenskukunnáttu eykur þú möguleika þína á íslenskum vinnumarkaði.

Með klínísku framhaldsnámi getur þú öðlast starfsréttindi sem sálfræðingur. Sálfræðingar starfa víða, til dæmis í skólum, á sjúkrahúsum, við ráðgjöf og meðferðarvinnu.

Félagslífið

Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms og er félagslíf stúdenta við HA öflugt.

Allir stúdentar við háskólann eru í Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA) en einnig er hver deild með sitt stúdentafélag. Kumpáni er félag félagsvísinda- og sálfræðistúdenta og þú getur nálgast nánari upplýsingar um félagið á Facebook.

Inntökuskilyrði

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá framhaldsskóla á þriðja hæfniþrepi, jafngildu erlendu prófi eða 60 ECTS einingum frá viðurkenndum háskóla. Á vef Menntamálastofnunar má sjá hæfniþrep námsbrauta á framhaldsskólastigi.

Þeir 60 stúdentar sem ná hæstri meðaleinkunn úr námskeiðunum Inngangur og undirstöður sálfræði og Tilraunasálfræði á haustmisseris 1. námsárs geta haldið áfram með námið. 

Tungumálapróf:

Allir umsækjendur þurfa að standast inntökupróf í íslensku sem haldið er 10. júní kl. 12:00–13:30 (tekur 90 mín). Próftökugjald er 15.000 kr.

Prófið er hægt að taka við HA, HÍ eða í viðurkenndum prófamiðstöðvum (aðstöðugjöld kunna að bætast við). Það metur grunnfærni í lesskilningi og hlustun.

Dæmi um próf: Lesskilningur (pdf) og Hlustun.

Umsækjendur með annað móðurmál en ensku þurfa að sýna fram á enskukunnáttu (TOEFL 79 / IELTS 6,5 / PTE 58).

Undanþágur:
Umsækjendur 25 ára og eldri sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði en hafa lokið að lágmarki 90 einingum (140 fein) á framhaldsskólastigi geta sótt um undanþágu.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.

Samkeppnispróf

Samkeppnispróf eru haldin við lok haustmisseris á 1. námsári í sálfræði. Þeir 60 stúdentar sem ná hæstri meðaleinkunn úr námskeiðunum Inngangur og undirstöður sálfræði og Tilraunasálfræði geta haldið áfram með námið. 
Stúdentar sem standast ekki samkeppnispróf geta ekki haldið sálfræðinámi áfram á vormisseri. 

Nánari upplýsingar má finna í Reglum Háskólans á Akureyri, undir stúdentar.

Sveigjanlegt nám

Allt grunnnám við Háskólann á Akureyri er sveigjanlegt nám sem þýðir að engu skiptir hvort þú ert staðarnemi eða fjarnemi. Allir fylgja sömu námskrá og námskröfur eru þær sömu.

Flestir hefðbundnir fyrirlestrar eru teknir upp og settir á kennsluvef. Þannig getur þú horft á fyrirlestra þegar þér hentar og eins oft og þú vilt. 

Skylda er að koma einu sinni á misseri í stuttar kennslulotur til Akureyrar þar sem megináhersla er lögð á verkefnavinnu, umræður og verklega kennslu. Þar gefst þér tækifæri til að hitta kennara, samnemendur og annað starfsfólk háskólans og tengjast enn betur háskólasamfélaginu þínu.

Stúdentar í sálfræðinámi mega búast við að einhver hluti námsins fari fram með rauntímakennslu með mætingarskyldu. Utan staðlotu er alltaf hægt að uppfylla mætingarskyldu með rafrænni mætingu.  

Vinsamlega athugið að hver vika í fullu háskólanámi er ígildi 50-60 stunda vinnuviku.

Hér getur þú lesið meira um sveigjanlega námið og séð hvenær námslotur eru.

Skiptinám

Allir stúdentar eiga kost á að taka hluta af námi sínu við erlenda samstarfsháskóla. Þú færð niðurfellingu á skólagjöldum gestaskólans og greiðir eingöngu innritunargjald í HA. Alþjóðafulltrúi aðstoðar þig við að sækja um námið, húsnæði og nemendastyrk.

Þú getur smellt hér og lesið meira um skiptinám.

Umsagnir

Sálfræðinám er frábær grunnur fyrir alla hvort heldur sem þeir ætla út á vinnumarkaðinn eða í frekara nám. Námið opnar fjölmargar aðrar námsleiðir en er á sama tíma góður undirbúningur fyrir lífið þar sem nemendur öðlast þekking og kunnáttu sem þeir búa að alla ævi. Námið er sveigjanlegt og umfram allt áhugavert, hvort sem þú stefnir á starfsréttindi sem sálfræðingur, framhaldsnám í mannauðstjórnun, kennsluréttindi eða einfaldlega að þroska þig sem persónu.

Friðrik Már Ævarsson
Sálfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Ég get eindregið mælt með Háskólanum á Akureyri þar sem aðgengi að kennurum er gott og andrúmsloftið afslappað, það sem stendur upp úr er einstaklega góð þjónusta og gott viðmót starfsfólks á bókasafni skólans sem auðveldaði mér námið á svo margan hátt með faglegri aðstoð og bros á vör. Ég hef góða reynslu af sálfræðináminu við Háskólann á Akureyri, en það er frábær grunnur fyrir stjórnunarstörf þar sem stjórnun snýr að miklu leyti að samskiptum við fólk.

J. Snæfríður Einarsdóttir
Ráðgjafi hjá HSE Consulting