1. Opna leitir.is
Á vef bókasafnsins smellir þú á leitir.is:

2. Leita að bók
- Smelltu á Allt efni
- Veldu Bækur
- Sláðu inn titil bókarinnar í leitargluggann

3. Velja rafræna útgáfu
Í leitarniðurstöðunum sérðu hvort bókin er:
- til á pappírsformi
- eða sem rafbók

- Smelltu á Rafrænn aðgangur:

- Smelltu á tengil undir Skoða rafrænt, sem vísar á útgefanda eða gagnagrunn, til dæmis: Taylor & Francis eBooks Complete. (Hér geta verið mismunandi útgefendur eða gagnagrunnar)

4. Lesa bókina eða hlaða niður kafla
Þú getur smellt á:
- Read Online til að lesa bókina í vafra
- Download til að hlaða niður kafla

Í þessu dæmi er um að ræða bækur frá Taylor & Francis, þar sem Bókasafn HA hefur ótakmarkaðan aðgang að bókum í áskrift. Það þýðir að margir geta lesið sömu bók samtímis þ.e. aðgangur lokast ekki þótt einhver annar sé þegar að lesa hana.
Mikilvægt að hafa í huga:
- Fjöldi blaðsíðna sem hægt er að hlaða niður í einu fer eftir reglum útgefanda
- Niðurhalað efni er oft aðeins tímabundið lán
- Aðgangstími getur verið mismunandi eftir: útgefanda, gagnagrunni og áskriftarskilmálum bókasafnsins
5. Stilla lesumhverfið
Með því að smella á Display Options geturðu breytt stillingum lesumhverfisins, til dæmis leturstærð:

6. Vinstra megin á síðunni eru ýmsir valmöguleikar
Þar getur þú meðal annars:
- opnað Contents (efnisyfirlit) til að fara beint í kafla
- eða valið References til að flytja heimildir yfir í RefWorks

Hér hefur ákveðinn kafli bókarinnar verið valinn úr efnisyfirlitinu:
