Laust starf: Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu

Háskólinn á Akureyri leitar að öflugum og framsýnum sviðsstjóra í nýtt lykilstarf innan skólans. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að móta náms- og kennsluþjónustu og hafa raunveruleg áhrif á starfsemi og framtíðarþróun háskólans. Leitað er að reyndum stjórnanda með góða þekkingu og reynslu af stjórnun þjónustu eða stoðeininga með áherslu á gæði og notendamiðaða nálgun.

Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í stjórnendateymi rektors og vinnur náið með rektor og öðrum stjórnendum að stefnumótun, ákvarðanatöku og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar. Starfið felur í sér leiðtogahlutverk þar sem áhersla er lögð á umbætur, góð samskipti og gagnadrifna nálgun.

Háskólinn á Akureyri er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem ríkir jákvætt starfsumhverfi, öflug liðsheild og metnaður fyrir fagmennsku og þróun sem endurspeglast m.a. í góðum niðurstöðum í könnuninni Stofnun ársins.

  • Næsti yfirmaður er rektor Háskólans á Akureyri
  • Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri
  • Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á og mótar faglega uppbyggingu náms- og kennsluþjónustu háskólans.
  • Leiðir stefnumótun, áætlanagerð og eftirfylgni með einingum sem eiga að styðja við kennara og nemendur, í nánu samstarfi við rektor og stjórnendateymi háskólans.
  • Ber rekstrarlega og fjárhagslega ábyrgð á stoðeiningum sem undir hann heyra.
  • Leiðir stöðugar umbætur, stafræna þróun og gæðastarf sviðsins.
  • Eflir samstarf við fræðasvið og aðrar einingar.
  • Tryggir samræmda, aðgengilega og skilvirka þjónustu við nemendur og starfsfólk háskólans.

Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu situr samráðsfundi rektors með forsetum fræðasviða og sviðsstjórum háskólans. Þær einingar sem heyra undir sviðsstjóra náms- og kennsluþjónustu eru: Miðstöð alþjóðasamskipta, kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð, nemendaráðgjöf, nemendaskrá og upplýsingaþjónusta og bókasafn.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf að lágmarki meistarastigi (eða sambærilegt) á viðeigandi sviði.
  • Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma.
  • Reynsla af breytingastjórnun, þjónustuþróun og samhæfingu ferla kostur.
  • Reynsla af háskólaumhverfi er kostur.
  • Reynsla af nemendakerfum er kostur.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp traust og ná árangri í samstarfi við ólíka hagsmunaaðila.
  • Þjónustulund, fagmennska og öflug framkvæmdahæfni.
  • Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða og leiða umbætur með gagnadrifinni nálgun.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda.
  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
  • Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
  • Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor, rektor@unak.is.

Sækja um starf