Vilt þú hafa áhrif á framtíð rannsókna?
Háskólinn á Akureyri leitar að metnaðarfullum og drífandi rannsóknarstjóra sem vill efla rannsóknasamfélag skólans, styðja vísindamenn til árangurs og auka sýnileika rannsókna - innanlands sem á alþjóðavettvangi. Um 100% starf er að ræða.
Starfið heyrir undir forstöðumann Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna. Starfsstöðin er við Háskólann á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita stuðning við umsóknir um rannsóknarstyrki í samkeppnissjóði.
- Þróa og innleiða ferla fyrir umsóknarvinnu vegna umsókna til íslenskra og alþjóðlegra styrktaraðila.
- Hafa yfirumsjón með eftirfylgni og regluvörslu eftir veitingu styrkja, þar með talið vegna rannsóknarsamninga, áfanga og lokaskýrslna.
- Kynna og miðla upplýsingum um styrktartækifæri fyrir akademískt starfsfólk.
- Vera tengiliður við styrktaraðila, þar á meðal Rannís, Horizon Europe og NordForsk.
- Koma á og viðhalda tengslaneti við viðeigandi ytri styrktaraðila og stofnanir.
- Umsýsla með rafrænum styrkjakerfum fyrir HA.
- Starfa í samstarfi við stjórnunar- og stoðeiningar háskólans, þar á meðal fjármálasvið, bókasafn og stjórnsýslu fræðasviða.
- Halda utan um tölfræði og upplýsingagjöf.
Hæfniskröfur
- Meistarapróf sem nýtist í starfi er nauðsynlegt og doktorspróf er æskilegt.
- Þekking og reynsla af rannsóknarstörfum og rannsóknarumhverfi, þar á meðal umsýslu rannsóknarverkefna.
- Reynsla af umsóknum í innlenda og alþjóðlega samkeppnissjóði og þekking á helstu rannsóknarstyrkjum.
- Reynsla af störfum í háskóla er æskileg.
- Reynsla af þróun verkferla, skipulagi og faglegri ráðgjöf telst kostur.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun telst kostur.
- Starfið gerir miklar kröfur til framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfileika, víðtækrar reynslu í tölvunotkun og ábyrgðarkenndar.
- Mjög góð færni í ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli, er nauðsynleg og færni í íslensku æskileg þá er færni í einu skandinavísku tungumáli kostur.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
- Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfa einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.05.2026
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna, gudrunth@unak.is.
Sækja um starf