Hvað á ég að kjósa í Akureyrarbæ?

21. apríl 2026 kl. 11:30-13:00
Framboðsfundur með frambjóðendum Akureyrarbæjar

Hvað á að kjósa 16. maí næstkomandi?

Stúdentum HA og íbúum Akureyrarbæjar gefst einstakt tækifæri til að kynna sér öll framboð Akureyrarbæjar til sveitarstjórnarkosninga 2026 í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri í hádeginu 21. apríl.

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) heldur fundinn og munu frambjóðendur Akureyrarbæjar sitja í pallborði þar sem gestum gefst tækifæri til að spyrja spurninga og eiga opið samtal við frambjóðendur.

Hér verður birtur listi yfir þá frambjóðendur sem mæta á staðinn.

Fundarstjóri verður Aðalbjörn Jóhannsson forseti SHA

Öll velkomin!