„Mér finnst allar konur í neyslu hafa áfallasögu“

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi - Rafrænir hádegisfyrirlestrar á vegum Háskólans á Akureyri.

Þann 25. nóvember nk. hefst sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi og er það Mannréttindaskrifstofa Íslands sem stendur fyrir átakinu. Að þessu tilefni verður boðið upp á rafræna fyrirlestra á þessu tímabili. Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri vill vekja athygli á átakinu sem og þessum fyrirlestrum. 

Þriðjudaginn 7. desember mun Arndís Vilhjálmsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur, fara með fyrirlesturinn "Mér finnst allar konur í neyslu hafa áfallasögu" - Reynsla kvenfanga af meðferðarúrræðum innan og utan fangelsis.

Öll velkomin!

ZOOM HLEKKUR