Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norður og Austurlandi

Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi, stendur fyrir málþingi

Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi, stendur fyrir málþingi um "Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norður og Austurlandi" í anddyri Borga við Norðurslóð, fimmtudaginn 26. apríl.

Dagskrá

Málþing sett

Ársskýrsla Aflsins og staða samtakanna kynnt.

Sigrún Sigurðardóttir, doktor við Háskólann á Akureyri og Jokka G Birnudóttir, fræðslufulltrúi Aflsins: Öskrandi líkaminn og þöggun heilbrigðiskerfisins

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra: Mæta þörfum þolenda ofbeldis

Hafdís Inga Hinriksdóttir, Félagsráðgjafi og sérfræðingur Bjarkarhlíðar: Reynslan og starfið í Bjarkarhlíð

Fulltrúar frá Zontaklúbbunum á Akureyri afhenda Aflinu afrakstur Hádegisfundar til styrktar Aflinu sem haldinn var 8. mars s.l.

Málþingi lokað

Allir velkomnir