Nýnemakvöld SHA

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri tekur vel á móti öllum nýnemum og hvetur nýnema og eldri stúdenta til þess að fjölmenna.

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri stendur fyrir nýnemakvöldi föstudaginn 28. ágúst kl. 20:00. Á nýnemakvöldinu verður spilað bingó og eru veglegir vinningar í boði. Nýnemar ásamt eldri stúdentum HA eru hvattir til þess að fjölmenna og hefja nýtt skólaár af krafti. Viðburðurinn fer fram á Facebooksíðu félagsins. ,,Markmið okkar er að halda uppi fjölbreyttu og öflugu félagslífi og nýta þær rafrænu lausnir sem við höfum'' segir Steinunn Alda Gunnarsdóttir formaður SHA.  

Allar nánari upplýsingar má nálgast hér