Starfamessa grunnskóla Akureyrarbæjar

Lokaður viðburður

Þann 3.mars 2023 verður nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar og nágrennis boðið upp á að sækja sameiginlega starfskynningu, svokallaða Starfamessu, í Háskólanum á Akureyri. Síðustu tvö ár hefur Starfamessa fallið niður af ástæðu sem öllum er kunnugt og finnst okkur nú mikilvægt að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Þetta er í fimmta sinn sem þessi viðburður er haldinn og hingað til hefur heppnast mjög vel.

Starfamessa felur í sér að bjóða mismunandi starfsstéttum að setja upp kynningarbása þar sem kynnt verða fyrir nemendum þau störf sem unnin eru innan fyrirtækisins eða stofnanna og hvaða færni eða menntun þarf til þess að vinna starfið. Með því gefst nemendum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt og spennandi störf og leggja þannig grunninn að menntun sinni í framtíðinni.