Stétt, kreppa og kapítalismi á Íslandi

11. mars 2026 kl. 10:00-11:30
Pallborðsumræður: Þróun íslensks kapítalisma og hagsveiflur – í ljósi rannsókna Owen Worth

Öll velkomin á opinn viðburð þar sem Fræðafólk HA ræðir þróun kapítalisma og hagsveiflur í ljósi rannsókna Owen Worth

Á þessum pallborðsfundi verður fjallað um nýleg verk prófessors Owen Worth um þróun íslensks kapítalisma. Í rannsóknum sínum skýrir Owen hagsveiflur íslenska hagkerfisins og hlutverk ráðandi fjármagnseigenda við breytinguna frá fjármagnsdrifinni uppsöfnun yfir í ferðaþjónustudrifna uppsöfnun (e. accumulation regimes).

  • Viðburðurinn fer fram í stofu N201 á ensku
  • Einnig verður streymt frá viðburðinum [hlekkur kemur hér]

Rannsóknir Owen, sem birtust nýlega í bókinni Nordic Neoliberalisms, benda til þess að efnahagsbati eftir alþjóðlegu fjármálakreppuna hafi einkennst af því að ráðandi fjármagnseigendur hafi snúið sér frá erlendum fjárfestingum og að innlendum. Það hafi í kjölfarið leitt til uppsveiflu í byggingariðnaði, samhliða hækkandi eignaverði og verðbólgu. Að mati Owen festir þessi þróun enn frekar í sessi tilhneiginguna til upp- og niðursveiflu sem löngum hefur einkennt hefur íslenskt hagkerfi og getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir mögulegar efnahags- og stjórnmálakreppur þegar fram í sækir.

Fræðafólk við Háskólann á Akureyri mun ræða verk Owen og hvað yfirstandandi kreppur og mögulegar framtíðarkreppur þýða fyrir skilning okkar á stéttum og íslensku samfélagi úr frá eigin rannsóknum. Sérstök áhersla verður á áhrif efnahagskreppa og þjóðfélagsbreytinga á stéttaskiptingu og hugmyndir fólks um stéttaskiptingu, verkakonur og verkalýðsstjórnmál.

Owen Worth er prófessor við stjórnmálafræði og opinbera stjórnsýslu (Department of Politics and Public Administration) við University of Limerick. Hann hefur birt fjölda greina um alþjóðlega stjórnmálahagfræði og menningarleg yfirráð (hegemóníu), er höfundur fjögurra bóka og er ritstjóri fræðiritsins Capital and Class.

Þátttakendur frá háskólanum á Akureyri

Öll velkomin!