Dr. Karen Birna Þorvaldsdóttir

Ég get heilshugar mælt með doktorsnáminu við Háskólann á Akureyri. Námið gerði mér kleift að öðlast dýpri skilning á mínu áhugasviði og auka hæfni mína sem rannsakandi. Það sem stóð upp úr var að vera hluti af metnaðarfullu, krefjandi og styðjandi fræðasamfélagi háskólans þar sem áhersla er lögð á alþjóðlegt samstarf. Doktorsnámið opnaði dyr að nýjum tækifærum og bjó mig afar vel undir áframhaldandi rannsókna- og vísindastörf.