Emma Elísa Evudóttir

Námið gaf mér tækifæri til að dýpka þekkingu mína á mínu áhugasviði í gegnum nána vinnu með leiðbeinanda og öðrum kennurum, ásamt því að kynna mig fyrir öðrum öngum rannsókna innan sálfræði. Þú öðlast heildsteypta reynslu við rannsóknartengda vinnu á meðan námi stendur og var sú reynsla mér ómetanleg þegar kom að umsóknum í framhaldsnám. Rannsóknartengt meistaranám í sálfræði gefur þér öll þau tækifæri sem þú þarft til að blómstra innan þíns áhugasviðs og ég gæti ekki mælt meira með því.