Sigurveig Gísladóttir

Nám mitt í HA var mjög gagnlegt í alla staði, gaf mér aukna faglega færni í öll mín daglegu störf og jók starfsánægju. Kennarar voru einstakir og frá upphafi fékk ég leiðbeiningar hvernig ég gæti best stýrt námi mínu til að gagnast mér sem best til framtíðarstarfa. Námið gaf mér líka faglegan metnað til að sækjast eftir nýjum verkefnum og ný tækifæri komu upp í starfi að loknu námi. Ég mæli eindregið með framhaldsnámi í HA og veit að ég mun sjálf sækja þangað aftur þegar ég finn þörf fyrir að auðga enn frekar mína faglegu færni.