Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna

Stúdentar og starfsfólk HA hvatt til að taka þátt í vinnustofu um nemendamiðaða háskólakennslu
Kennsludagar Kennsluakademíu opinberu háskólanna

Kennsluakademía opinberu háskólanna í samstarfi við Kennslumiðstöð Háskóla Íslands heldur árlega Kennsludaga dagana 13. til 20. mars næstkomandi. Markmið Kennsludaga er að efla samtal um mikilvægi kennslu og kennsluþróunar á háskólastigi. Kennsludagar hefjast á föstudag og standa yfir til föstudagsins 20. mars.

Opinberu háskólarnir skipuleggja opna viðburði sem fara fram ýmist í háskólunum sjálfum og/eða í streymi. „Ég hvet alla áhugasama til að kynna sér fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá Kennsludaga í ár, með staðbundnum og streymdum viðburðum í bland. Ég hvet sérstaklega nemendur, kennara og annað starfsfólk HA til að mæta á vinnustofu um eflingu nemendamiðaðrar háskólakennslu föstudaginn 13. mars og fyrirlestur Magnúsar Smára Smárasonar miðvikudaginn 18. mars um hvernig þægindavæðing með gervigreind í menntakerfinu skapar vitræna skuld. Bæði eru viðfangsefni sem eiga svo sannarlega brýnt erindi við samfélagið okkar í dag,“ segir Guðmundur Oddsson, prófessor við Félagsvísindadeild HA, stjórnarmaður í Kennsluakademíu opinberu háskólanna og meðlimur í stýrihópi Kennsludaga.

Sérstakir gestir Kennsludaga í ár eru Steven Mintz, prófessor í sagnfræði við Texas háskóla og Åse Nygren, kennsluþróunarstjóri í háskólanum í Blekinge og við Malmö.

Hlustað á raddir nemenda: Efling nemendamiðaðrar háskólakennslu

Á föstudag munu meðlimir Kennsluakademíunnar í HA, þau Jette Jörgensen, Hafdís Skúladóttir, Sean Scully og Guðmundur Oddsson, bjóða upp á áhugaverða vinnustofu um nemendamiðaða nálgun.

Á vinnustofunni munu kennarar deila reynslu sinni af því hvernig hægt er að virkja endurgjöf nemenda til að bæta kennslu og námsumhverfi. Fluttar verða þrjár stuttar kynningar um mismunandi leiðir til að hlusta á og vinna með sjónarmið nemenda – áður en námskeið hefjast, meðan á þeim stendur og eftir að þeim lýkur.
Að kynningum loknum taka við líflegar umræður í svokölluðu fiskabúrssamtali þar sem nemendur og kennarar ræða saman áskoranir, hugmyndir og leiðir til að þróa enn nemendamiðaðri kennslu.

Vinnustofan fer einungis fram á staðnum og hefst klukkan 13.30. Áhugasamir HA-ingar eru hvattir til að skrá sig á vinnustofuna í Uglu.

Hvernig þægindavæðing með gervigreind í menntakerfinu skapar vitræna skuld

Magnús Smári verkefnastjóri á sviði gervigreindar við HA mun eins og áður sagði fjalla um áhrif gervigreindar á menntun og velta því upp hvort aukin skilvirkni í námi geti í raun grafið undan gagnrýninni hugsun. Markaðssetning gervigreindra lausna lofar oft að losa okkur undan „forminu“ svo við getum einbeitt okkur að „efninu“. En hvað gerist þegar við útvistum hugsun til mállíkana – hvort sem það er kennarinn við yfirferð eða nemandinn við textaskrif?

Viðburðurinn hefst klukkan 12.00 í stofu M102 og verður einnig streymt frá honum á Zoom. Áhugasöm geta nálgast nánari upplýsingar hér.

Fjölbreytt dagskrá

Eins og áður sagði standa Kennsludagar yfir í viku. Fjölbreytt og metnaðarfull dagskrá er í boði og er hægt að nálgast ítarlegri dagskrá hér.