Í byrjun maí fékk Lagadeild Háskólans á Akureyri heimsókn frá tveimur háttsettum fulltrúum pólska réttarkerfisins
Í byrjun maí fékk Lagadeild Háskólans á Akureyri heimsókn frá tveimur háttsettum fulltrúum pólska réttarkerfisins. Þetta voru þær dr. hab. Małgorzata Manowska, fyrsti forseti Hæstaréttar Póllands, og prófessor dr. hab. Joanna Lemańska, dómari við Hæstarétt Póllands. Báðar hafa þær reynslu af akademískum störfum og koma enn að kennslu við pólska háskóla.
Á móti gestunum tóku Elín Díanna Gunnarsdóttir aðstoðarrektor háskólans, Davíð Þór Björgvinsson fráfarandi deildarforseti og prófessor emeritus, og starfandi deildarforseti Ingibjörg Ingvadóttir, ásamt þeim Valgerði Guðmundsdóttur verðandi deildarforseta og Antje Neuman starfandi brautarstjóri í heimskautarétti.

Við komuna var gestunum fylgt um húsakynni skólans og þeim sýnd aðstaðan, kennslustofur, bókasafn og tæknilausnir sem nýttar eru í kennslu. Þar á meðal svokallaðar Fjærverur sem gera stúdentum kleift að taka þátt í námi þótt þeir geti ekki mætt í staðlotur við skólann. Í heimsókninni fengu gestirnir svo kynningu á starfsemi Háskólans á Akureyri og Lagadeildarinnar. Sérstök áhersla var lögð á almennt skipulag skólans, grunnstarf Lagadeildarinnar og heimskautaréttar.
Heimsóknin var ánægjuleg í alla staði og mikilvæg fyrir Lagadeildina, hún skapaði tækifæri til að kynna starfsemi deildarinnar og efla frekar alþjóðleg tengsl.