Samstarf Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík stuðlar að enn frekari árangri nemanda á norður- og austurlandi í forritunarkeppni framhaldsskólanna
Forritunarkeppni framhaldsskólanna var haldin í mars síðastliðnum á vegum Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Akureyri (HA). Keppnin hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk með áhuga á tölvunarfræði og hefur verið haldin á Akureyri í yfir áratug, eða allt frá því að samstarf HA og HR um tölvunarfræðinám hófst.
Í ár var þátttaka með allra mesta móti og tóku fjölmörg lið þátt víðs vegar af landinu. Áberandi var öflug þátttaka utan höfuðborgarsvæðisins og var keppnin nú einnig haldin á Austurlandi annað árið í röð og fer þátttaka þar vaxandi.
Metþátttaka á norður- og austurlandi
Alls tóku 12 lið eða um 30 nemendur þátt á svæðinu og er það metþátttaka. Þrjú lið af norður- og austurlandi náðu verðlaunasætum. Í alfa deild, sterkustu deild keppninnar, hafnaði liðið „Forrhitað eða ristað?“ úr Menntaskólanum á Akureyri (MA), í þriðja sæti. Í liðinu voru Elvar Björn Ólafsson, Orri Páll Pálsson og Viktor Franz Bjarkason. Í delta deildinni átti landshlutinn lið í 1. og 3. sæti. Í 1. sæti var liðið „Timaur“ frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og liðið skipuðu, Sigbjörn Viktor Jóhannsson, Arnar Freyr Guðmundsson og Brynjar Pálmi Ásgeirsson. Þá náði liðið „SyntaxErrorTeymið“ úr MA, þriðja sæti og það skipuðu Ármann Snær Heimisson, Ármann Gunnar Benediktsson og Denys Ivanko.
Áhugi á tölvunarfræði eykst
Hlutverk HA í keppninni er mikilvægt því í gegnum samstarf háskólanna tveggja gefst nemendum á landsbyggðinni tækifæri til að taka þátt í keppninni í sínu nærumhverfi. Samstarfið felur jafnframt í sér að hægt er að stunda þriggja ára BS-nám í tölvunarfræði frá HR á Akureyri í samstarfi við HA.
Árangur liða utan höfuðborgarsvæðisins í keppninni í ár er skýr vísbending um vaxandi áhuga á tölvunarfræði og þann sterka grunn sem samstarf HA og HR hefur byggt upp um land allt.