Rachael Lorna Johnstone og Sigrún Sigurðardóttir hafa lokið 18 mánaða rannsóknarsamstarfi í Arctic Fulbright Initiative IV. Því lauk með þátttöku á ráðstefnunni Arctic Encounter sem fram fór í Anchorage í Alaska dagana 15.-17. apríl.
Á ráðstefnunni var kynnt stefnumótunarskýrsla (policy brief) sem unnið hefur verið að síðustu mánuði.
Á ráðstefnunni voru þátttakendur frá Íslandi. Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra Íslands í Bandaríkjunum ræddi ásamt sendifulltrúa Grænlands meðal annars um mikilvægi samstarfs Íslands og Grænlands í erindi „The World Is Watching | Iceland and Greenland on Power, Sovereignty, and What Comes Next“ og Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, var í pallborði „The Arctic Speaks: A Global Dialogue of Elected Leaders on the Future of the North".
Fulbright Arctic Initiative (FAI) er víðtækt net sérfræðinga og rannsakenda frá Bandaríkjunum, Kanada, Danmörku, Grænlandi, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Verkefni þeirra á tímabilinu 2024 til 2026 beinast að lykilrannsóknarspurningum sem tengjast því að skapa öruggar og sjálfbærar. Svið rannsakenda þveraði mörg fagsvið og víddir, raunvísind, náttúruvísindi, félagsvísinda og heilbrigðisvísind, auk fulltrúa frumbyggja og staðbundinnar þekkingar, sem og fagfólks sem starfar á ólíkum sviðum og geirum tengdum norðurslóðum.