„Stúdentar mynda sterkt samfélag sem litar bæjarlífið okkar“

Sólveig María Árnadóttir, verkefnastjóri samfélagsmiðla og samskipta við HA, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast lífinu í skólanum.
„Stúdentar mynda sterkt samfélag sem litar bæjarlífið okkar“

Við hvað starfar þú hjá HA og hvað ertu búin að vera lengi í starfi?

Ég er verkefnastjóri samfélagsmiðla og samskipta, starfstitillinn minn er kannski ekkert voðalega lýsandi fyrir þau fjölbreyttu verkefni sem liggja á mínu borði. Þessa dagana er ég að keyra auglýsingaherferð vegna umsóknartímabils og er að koma mér í gírinn að undirbúa Háskólahátíð. Ég hef starfað við HA í 6 ár, hóf störf hjá Markaðs- og kynningarmálum nokkrum mánuðum áður en ég lauk MEd prófi árið 2020 og mitt fyrsta verkefni var að skipuleggja mína eigin brautskráningu. Steig fyrst fæti í HA sem nýnemi árið 2015 og hef ekki farið síðan.

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?

Háskólalífið á Akureyri er gott, það er náið og persónulegt. Akureyri hefur þó alla burði til þess að verða enn sterkari og öflugri háskólabær. Það er svolítill misskilningur og þá sérstaklega meðal bæjarbúa að hér sé ekkert líf og að allt nám fari fram í fjarnámi. Staðreyndin er hins vegar sú að fjöldi stúdenta stundar nám sitt á staðnum og mætir á háskólasvæðið á hverjum degi. Stúdentar mynda sterkt samfélag sem litar bæjarlífið okkar. Ég myndi þó vilja sjá staðnámið eflast enn frekar og það eru svo sannarlega tækifæri meðal annars með fyrirhuguðum stúdentagörðum á háskólasvæðinu.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Söngkona og kennari.

Hvað finnst þér gera HA sérstakan?

Fólkið og félagslífið. HA er persónulegur háskóli þar sem stúdentar fá að njóta sín í styðjandi námsumhverfi. Kennarar og starfsfólk leggur sig fram um að þekkja stúdentana sína og okkur öllum er virkilega annt um að stúdentar nái sínum markmiðum. Enda ríkir sjaldnast eins mikil gleði í HA eins og á Háskólahátíð. Félagslífið í HA er einstakt, þegar ég stundaði hér nám eignaðist ég mína bestu vini, þvert á námsleiðir. Það jafnast líka ekkert á við Sprellmótið, það gerir HA svo sannarlega sérstakan, að öðrum viðburðum ólöstuðum!

Skemmtilegasta minning þín í HA?

Brautskráningin sem ég skipulagði fyrir sjálfa mig og samnemendur mína er ofarlega á listanum enda á furðulegum tíma í Covid. Fyrsta Sprellmótið mitt sem dómari og reyndar öll Sprellmótin þar á milli eru líka afar ofarlega. Á Háskólahátíð fyrir tveimur árum þurftum við Heiða mín að hlaupa á eftir brautskráningarskírteinum í miðri athöfn, það er skemmtileg minning í dag sem er til á upptöku. Það er erfitt að velja einhverja eina uppáhalds minningu. Ég á ótal minningar sem stúdent við HA og svo í dag sem starfsmaður. Það sem sameinar þó allar þessar minningar eru allir HA-ingarnir sem ég á þær með.

Uppáhaldsstaður í HA?

Teppið sem er einn fallegasti útsýnisstaður bæjarins. Mér líður líka voðalega vel á skrifstofunni minni í stærstu byggingu á Íslandi (Borgum).

Hvaða þrjú orð dettur þér í hug þegar þú hugsar um HA?

Persónulegt samfélag, nálægð og tækifæri