Ég er ekki fullkomin — Frá botninum á toppinn

5. maí 2026 kl. 12:30-13:30
Sigurður E. Sigurjónsson stúdent við Háskólann á Akureyri, mun flytja fyrirlesturinn „Ég er ekki fullkomin — Frá botninum á toppinn“ í Háskólanum á Akureyri þriðjudaginn 5. maí n.k. í stofu M102.

Sigurður E. Sigurjónsson stúdent við Háskólann á Akureyri hefur síðasta árið flutt fjölda fyrirlestra víða um land. Fyrirlestraröðin fór af stað í kjölfarið á útgáfu bókarinnar “Ég er ekki fullkominn” í apríl árið 2025.

Hér er um að ræða einlæga frásögn ungs manns af baráttu við hamlandi kvíða, allt frá botninum á toppinn. Saga drengs sem gerði óraunhæfar kröfur til sjálfs síns og talaði sjálfan sig niður. En með mikilli vinnu snéri blaðinu við og hefur náð góðum tökum á sínu lífi.

Sigurður mun flytja fyrirlesturinn í Háskólanum á Akureyri þriðjudaginn 5. maí n.k. í stofu M102.

Þar mun hann segja þessa sögu og frá þeim ótrúlegu ævintýrum sem lífið hefur fært honum á síðustu árum.
Jafnframt mun hann greina frá stöðu verkefnisins og hápunktum ársins sem liðið er frá því að verkefnið fór formlega af stað.