Háskóli fyrir okkur öll - Samráðsfundur um inngildandi háskólanám

Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands og Öryrkjabandalag Íslands boða til samráðsfundar um inngildandi háskólanám

Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Öryrkjabandalag Íslands boða til samráðsfundar um inngildandi háskólanám.

Viðburðurinn fer fram í stofu N102 í Háskólanum á Akureyri og verður einnig streymt frá honum hér.

Fundinum stjórna nemendur í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun á Menntavísindasviði HÍ. Þar munu þau deila reynslu sinni af háskólanámi og kynna námið ásamt því að stýra umræðuhópum sem eru öllum opnir. Markmið fundarins er að vekja athygli á mikilvægi háskólanáms fyrir fólk með þroskahömlun og hvetja stjórnvöld og háskóla landsins til að auka námstækifæri á háskólastigi.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar að fundi loknum.

Mikilvægt er að þátttakendur skrái þátttöku sína hér.

Öll velkomin!