Kynningardagur iðjuþjálfunarfræðideildar

13. maí 2026 kl. 09:30-12:00
Hvernig geta nýsköpun og iðjuþjálfun skapað betra samfélag?

Útskriftarnemar í BS-námi í iðjuþjálfunarfræði við Háskólann á Akureyri kynna nýsköpunarverkefni sín úr námskeiðinu Nýsköpun 0112 á kynningardegi sem fram fer miðvikudaginn 13. maí í stofu M101 og í gegnum Zoom.

Á kynningardeginum verða fjölbreytt verkefni kynnt sem snúa meðal annars að stuðningi við fólk með heilabilun, virkniúrræðum fyrir unglinga, lausnum fyrir fjölskyldur og stafrænum stuðningi fyrir ungt fólk með gigt. Verkefnin eru unnin af stúdentum á lokaári námsins og endurspegla skapandi hugsun, notendamiðaðar lausnir og samfélagslega nálgun iðjuþjálfunar.

Dagskrá

09:30 – 09:40 | Í upphafi dags
Þóra Leósdóttir, formaður Iðjuþjálfafélags Íslands

09:40 - 09:55 | Leiðarljós: Stuðningur við fólk með heilabilun
Aðalbjörg Eðvarðsdóttir, Nína Lovísa Ragnarsdóttir, Unnur Ólöf Tómasdóttir og Þórunn María Newman

10:00 - 10:15 | Drifið: Virknitilboð fyrir unglinga
Andri Bjarnason, Ásta Bjarndís Þorsteinsdóttir, Marta Ellertsdóttir og Rosana Davudsdóttir

10:20 – 10:35 | Krakkagleði: Samverukassar fyrir fjölskylduna
Ása Mjöll Þorbergsdóttir, Ástdís Birta Björgvinsdóttir, Laufey Heiða Reynisdóttir og Selma Ágústsdóttir

10:40 – 10:55 | Kaffihlé

11:00 – 11:15 | Flæði: Stafræn lausn fyrir ungt fólk með gigt
Guðrún Mist Þórðardóttir, Katrín Eva Jóhannesdóttir og Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir

11:20 – 11:35 | Styrkur: Bætt samskipti og aukin félagsleg þátttaka
Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir, Katrín Anna Halldórsdóttir, Lísbet Eva Halldórsdóttir og Valgerður Hilmarsdóttir

11:40 – 11:50 | Í lok dags
Sólrún Óladóttir, forseti Iðjuþjálfunarfræðideildar HA

11:50 – 12:00 | Slit
Ósk Sigurðardóttir og Bergljót Borg, kennarar í námskeiðinu NSK0112

 

Öll velkomin