Kynning á rannsóknarumhverfi og samstarfsmöguleikar - Pólland og Noregur

22. maí 2026 kl. 09:00-14:00
Fulltrúar frá National Science Centre í Póllandi og Research Council of Norway heimsækja Háskólann á Akureyri 22. maí til að kynna væntanleg rannsóknaköll innan EEA-Norway Grants í Póllandi.

Dagskrá

  • 09:00 - Ávarp frá pólska sendiráðinu á Íslandi – Mr. Duszyński Maciej, staðgengill sendiherra, yfirmaður stjórnmála-, efnahags- og menningarsvið
  • 09:05 - Mikilvægi EES-samstarfs við Pólland – Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannsóknamiðstöðvar Íslands, Rannís
  • 09:15 - Hvert er hlutverk pólsku vísindamiðstöðvarinnar? – Marcin Liana, aðstoðarforstjóri pólsku vísindamiðstöðvarinnar, NCN
  • 09:25 - Yfirlit yfir pólska rannsóknakerfið – Anna Wiktor, yfirmaður samhæfingarteymis hjá NCN
  • 10:00 - Kaffihlé
  • 10:15 - Kynning á Grieg- og Langspil-köllunum á sviði grunnrannsókna – Marzena Oliwkiewicz-Miklasińska, yfirmaður og Joanna Węgrzycka hjá EES- og Noregsstyrkjum hjá NCN
  • 11:00 - Hvernig geta Pólland, Ísland og Noregur unnið saman innan EES-styrkjanna? – Julia Christiansen, sérfræðingur hjá alþjóðasviði norsku rannsóknamiðstöðvarinnar, National Centre for Research and Development
  • 11:30 - Hvaða tækifæri eru í boði almennt hvað varðar rannsóknarsvið í Póllandi? – Maciej Jędrzejek frá pólsku rannsóknar- og þróunarmiðstöðinni, NCBR
  • 11:50 - Kynning á tengslamyndunartóli – Michał Olejnik, hjá EES- og Noregsstyrkjum hjá NCN
  • 12:00 - Tengslamyndunarviðburður
  • 13:00 - Hádegisverður í Háskólanum á Akureyri - Miðborg

Kynningin er ætluð rannsakendum sem hafa áhuga á alþjóðlegu rannsóknasamstarfi, einkum við pólska aðila. Þetta innifelur í sér fjármögnun fyrir grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og nýsköpun. Sérstök áhersla verður á næstu köll, þar á meðal GRIEG-Bis, LANGSPIL-Interdisciplinary og smærri samstarfs- og undirbúningsstyrki. Einnig verður kynnt nýtt tengslamyndunartól sem verið er að setja af stað til að auðvelda rannsakendum að tengjast pólskum rannsóknastofnunum og rannsóknasamstarfshópum.

Köllin bjóða upp á tækifæri fyrir íslenska rannsakendur til að taka þátt sem samstarfsaðilar í pólskum rannsóknaverkefnum, meðal annars á sviði grunnrannsókna, þverfaglegra verkefna, grænna umskipta, samfélagslegrar þátttöku og lýðræðis.

Streymt verður frá kynningunni hér á Zoom

Vonumst til að sjá sem flest sem vinna að rannsóknum á þessu sviði.

Öll velkomin!