EHIS og Landskönnun á hreyfingu, kyrrsetu og svefni

6. október 2025 kl. 12:00-12:40
Velkomin á opinn kynningarfund

Embætti landlæknis er þátttakandi í Evrópuverkefninu JA PreventNCD, en meginmarkmið verkefnisins er að innleiða árangursríkar aðgerðir til að koma í veg fyrir ósmitbæra sjúkdóma, eins og krabbamein, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma, með áherslu á áhættuþætti og stefnumótun til að efla lýðheilsu. Alls taka yfir 100 stofnanir frá 22 aðildarríkjum Evrópusambandsins þátt í verkefninu ásamt Íslandi, Noregi og Úkraínu. Lýðheilsusvið embættis landlæknis leiðir þátttöku Íslands í verkefninu.

Einn hluti verkefnisins er að framkvæma mælingar á hreyfingu, kyrrsetu og svefni. Sú rannsókn er hafin og kallast Landskönnun á hreyfingu, kyrrsetu og svefni og er samstarfsverkefni embættis landlæknis, Hagstofu Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Í fyrri hluta Landskönnunar HKS svara þátttakendur EHIS spurningalista frá Hagstofu Íslands.

  • Opinn kynningarfundur um rannsóknina fer fram í stofu N102 í streymi mánudaginn 6. október kl. 12:00. Þar verður farið yfir framkvæmd og markmið rannsóknarinnar sem og samstarf stofnananna sem að henni koma

Dagskrá

  • 12:00 Embætti landlæknis – Dóra Guðrún Guðmundsdóttir JAPreventNCD
  • 12:10 Hagstofa Íslands – Anton Örn Karlsson 
  • 12:20 Birna Valborgar Baldursdóttir (HR), G. Sunna Gestsdóttir (HÍ) og Nanna Ýr Arnardóttir (HA) segja frá Landskönnun á hreyfingu, kyrrsetu og svefni og kynna tengsl háskólanna við verkefnið
  • 12:30 Spurningar/umræður

Smelltu hér til að tengjast fundinum á Teams

Öll velkomin!