28. maí 2026 kl. 12:00-13:30
Meistaranemar við Viðskiptadeild kynna verkefni sín
Öll velkomin á opna málstofu Viðskiptadeildar HA!
Á þessari opnu málstofu Viðskiptadeildar munu meistaranemar við deildina kynna verkefni sín.
- Málstofan fer fram í stofu M102
- Áhugasöm geta fylgst með á Zoom hér
- Málstofan er öllum opin
Dagskrá
12:00-12:15 | Breytingar í framkvæmd: Upplifun starfsmanna af innleiðingu á nýju meðferðarkerfi
Erna Margrét Grímsdóttir
12:15-12:30 | Að leiða með hjarta og huga: Upplifun íslenskra stjórnenda af jafnvægi mannlegra gilda og rekstrarlegra markmiða
Heiðdís Skarphéðinsdóttir
12:30-12:45 | Sálrænt öryggi, liðsheild og leiðtogastíll: Eigindleg rannsókn á upplifun kvenna og brottfall úr handbolta - Hvaða hlutverki gegna þjálfarar í upplifun kvenna af sálrænu öryggi?
Hulda Dagsdóttir
12:45-13:00 | Þar sem samskipti skipta máli: Upplifun stjórnenda og starfsmanna af samskiptum á vinnustað
Lilja Snædís Guðjónsdóttir
13:00-13:15 | Samþætting upplýsingatækni eftir sameiningu opinberra stofnana: Reynsla af sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins
Vilhjálmur Jónsson
13:15-13:30 | Umræður um verkefnin
Öll velkomin!