Opnun sýningarinnar „Óútgefin prófskírteini. Aldrei útskrifuð, aðeins minnst“

19. maí 2026 kl. 14:00-15:00
Sýning sem hefur ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem munu aldrei útskrifast

„Óútgefin prófskírteini“ er sýning sem hefur ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem munu aldrei útskrifast þar sem þeir létu lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Opnun sýningarinnar: 

  • Þriðjudagur 19. maí
  • Klukkan 14:00 
  • Bókasafn HA

Sýningin verður opin fram til 2. júní

Jafnréttiskólinn (GRÓ GEST), ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri, er gestgjafi sýningarinnar.
 
Á prófskírteinin er rituð saga nemendanna sem létust í blóma lífsins – þessi tákn menntunar standa eftir sem minnisvarðar um skarð sem aldrei verður fyllt. Markmið sýningarinnar er minna umheiminn á yfirstandandi stríð og það gjald sem Úkraínumenn greiða á degi hverjum í baráttu sinni fyrir frelsi.
 
Daryna Zavhorodnia sem nú stundar nám við GRÓ GEST einn af upphafsmanneskjum sýningarinnar sem hefur verið sett upp í ólíkum háskólum og söfnum í yfir fjörutíu löndum. Daryna mun kynna sýninguna og verkefnið á opnuninni.
 

ÖLL VELKOMIN!