Skiptinám & styrkir

30. janúar 2025 kl. 15:00-16:00
Rafrænn kynningarfundur um skiptinám!

Rafrænn kynningarfundur um skiptinám!

Vissir þú að allir stúdentar við HA eiga kost á að taka hluta af námi sínu við erlenda samstarfsháskóla. Taktu skrefið út í heim og upplifðu eitthvað nýtt! 

Miðstöð alþjóðasamskipta stendur fyrir rafrænni kynningu um skipitnám fimmtudaginn 30. janúar kl. 15:00 hér á Zoom.

  • Umsóknarfrestur fyrir skiptinám fyrir skólaárið 2025-2026 er 1. mars 2025.

Einingar sem stúdentar ljúka í skiptinámi við samstarfsskóla HA eru metnar inn í nám við HA. Skiptinám er því einstakt tækifæri til að bæta alþjóðlegri vídd í háskólanámið og að upplifa eitthvað nýtt.

HA er í samstarfi við yfir 200 háskóla víða um heim og árlega taka þó nokkrir stúdentar hluta af námi sínu við erlenda háskóla. Skiptinám veitir tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn og efla tengslanetið, kynnast nýjum menningarheimum og skapar forskot á vinnumarkaði en rannsóknir sýna að vinnuveitendur horfa í auknum mæli til alþjóðlegrar reynslu.

Allir stúdentar velkomnir, líka þeir sem hafa ekki hugleitt skiptinám!