Vísindi í námi og leik

Vorráðstefna Miðstöðvar skólaþróunar.

Ráðstefna um menntavísindi á vegum Miðstöðvar skólaþróunar og Málþings um náttúrufræðimenntun* verður haldin í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 30. mars 2019.

Á ráðstefnunni verður fjallað um nám og kennslu í náttúruvísindum, stærðfræði og tækni, þ.m.t. upplýsingatækni, í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

Ráðstefnan er ætluð kennurum og starfsfólki í leik-, grunn-, og framhaldsskólum og sérstaklega er horft til þess að umfjöllunarefni hafi hagnýtt gildi í skólastarfi. Auk aðalfyrirlestra og pallborðsumræðna verða bæði málstofuerindi og vinnustofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að námi og kennslu með sérstakri áherslu á fyrrnefnd viðfangsefni.

 *Að baki Málþings um náttúrufræðimenntun standa ýmis félög og samtök, má þar nefna: Samlíf - samtök líffræðikennara, Félag raungreinakennara, NaNO - Náttúruvísindi á nýrri öld, GERT, RAUN – Rannsóknar-stofu um náttúrufræðimenntun, Flöt - samtök stærðfræðikennara og Félag leikskólakennara. Að auki koma Menntavísindasvið HÍ og Kennaradeild HA að ráðstefnunni.