Hér finnur þú leiðbeiningar og upplýsingar um fræðileg vinnubrögð, upplýsingalæsi og heimildaskráningu. Ef þú þarft frekari aðstoð getur þú bókað tíma hjá bókasafnsfræðingi.
Námskeið í upplýsingalæsi
Leita – finna – meta
Námskeið fyrir háskólanema og aðra sem vilja efla færni sína í upplýsingalæsi. Þar lærir þú að leita að upplýsingum, meta þær og nota á ábyrgan hátt.
Námskeiðið er unnið af Vinnuhópi um upplýsingalæsi á íslenskum háskólabókasöfnum.
Heimildaskráning
Þegar þú notar heimildir í verkefnum og fræðilegum skrifum þarftu að vísa til þeirra samkvæmt viðeigandi heimildaskráningarstaðli.
APA staðall
APA er heimildaskráningarstaðall sem er mikið notaður í háskólanámi. Hér finnur þú leiðbeiningar um tilvísanir og heimildaskrá samkvæmt APA 7. útgáfu.
OSCOLA
OSCOLA er heimildaskráningarstaðall sem er einkum notaður í lögfræði. Hér finnur þú leiðbeiningar um tilvísanir og heimildaskrá samkvæmt OSCOLA.
EndNote Fusion
EndNote Fusion hjálpar þér að halda utan um heimildir, búa til heimildaskrá og vísa í heimildir. Með EndNote Fusion getur þú sparað tími og haldið utan um heimildavinnuna.
Notaðu HA-netfangið þitt (@unak.is) þegar þú stofnar aðgang.
Leiðbeiningar
Hér finnur þú stutt myndbönd sem leiða þig í gegnum helstu aðgerðir EndNote Fusion.
1. Byrjaðu hér
Fyrir þá sem eru að nota EndNote Fusion í fyrsta sinn.
2. Skráðu og skipuleggðu heimildir
Lærðu að skrá heimildir, lagfæra upplýsingar og halda heimildasafninu þínu skipulögðu.
3. Tilvísanir og heimildaskrá
Notaðu EndNote Fusion til að vísa í heimildir á réttan hátt og búa til heimildaskrá.
4. EndNote Fusion með öðrum verkfærum
Leiðbeiningar um notkun EndNote Fusion með öðrum kerfum.
Notkunarleyfi
Kennsluefni sem merkt er Bókasafni Háskólans á Akureyri er gefið út með CC BY 4.0 notkunarleyfi. Efnið má því afrita, deila og aðlaga að því gefnu að upprunalegs höfundar sé getið, vísað sé í leyfið og tekið fram ef breytingar hafa verið gerðar.
Dæmi um tilvísun: Þetta efni er byggt á „[Titill]“ eftir Bókasafn Háskólans á Akureyri, leyfi samkvæmt CC BY 4.0.