485. fundur Háskólaráðs

Fundur var haldinn fimmtudaginn 28. maí 2026 í Norðurborg kl. 13:30.

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor setti fund kl. 13:30

Mætt voru auk hennar:

Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins í gegn um fjarfundarbúnað
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs

Einnig mætt:

Sindri S. Kristjánsson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu

Gestir:

Harpa Halldórsdóttir sérfræðingur fjármálagreininga
Hólmfríður Lilja Birgisdóttir verkefnastjóri gagnagreininga og fjárhags
Yvonne Höller prófessor og formaður umhverfisnefndar

Rektor kynnti dagskrá.

1. Fjármál og rekstur

2601068

Harpa Halldórsdóttir og Hólmfríður Lilja Birgisdóttir sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.

Harpa og Hólmfríður Lilja fóru yfir rekstrarstöðu háskólans fyrir tímabilið janúar – apríl á þessu ári. Rektstrarstaðan er neikvæð en skýringa er að finna í mismuni milli þess hvenær stofnað hefur verið til gjalda samanborið við rekstraráætlun. Rætt var um rekstur sk. sértekjueininga. Þá var rætt um fjármögnunarlíkan íslenskra háskóla og hvernig fjármagn til verkefna sem tilheyra sértekjueiningum og falla undir sk. byggðahlutverk skilar sér til Háskólans á Akureyri.

2. Staða umhverfismála hjá háskólanum

2605061

Yvonne Höller sat fund háskólaráðs undir þessum lið.

Yvonne kynnti fyrir háskólaráði stöðuna á umhverfismálum hjá Háskólanum á Akureyri. Yvonne er formaður umhverfisráðs háskólans. Í kynningunni var farið yfir verkefni sem umhverfisráð stendur fyrir, t.d. green teaching award og green thesis og sjálfbærniráðstefnana, sem opnuð var af forseta Íslands á þessu ári. Yvonne gerði háskólaráði grein fyrir verkefnunum Grænfánanum og Grænum skrefum, og í hverju munurinn liggur. Þá útskýrði Yvonne hvernig sakir standa með Græn skref hjá háskólanum. Rætt var um aðkomu stúdentaráðs háskólans að Grænfána verkefninu og umhverfismálum almennt. Þá var bent á það að háskólanum ber eins og öðrum opinberum stofnunum skylda til að hafa loftslagsstefnu. Umræður sköpuðust um áhersluna á að flokka úrgang samanborið við aðrar áherslur. Einnig var rætt um innkaup í mötuneyti og hvernig þau samræmast umhverfismarkmiðum háskólans.

Háskólaráð þakkar Yvonne Höller fyrir kynninguna og leggur á það áherslu að störf umhverfiráðs verði studd með ráðum og dáðum af stjórnendum háskólans. Full innleiðing á Grænum skrefum er leið fyrir háskólann að taka ábyrgð í umhverfis- og loftslagsmálum og til þess fallin að auka hagkvæmni í rekstri.

3. Dagskrá háskólahátíðar 2026

2508134

Rektor gerði háskólaráði grein fyrir dagskrá háskólahátíðar 2026. Hátíðin skiptist í fjórar athafnir sem fram fara dagana 19. og 20. júní, og er sú ákvörðun tekin af fenginni reynslu fyrri ára. Heiðursgestir hátíðarinnar verða tveir að þessu sinni, og eru báðir fyrrum nemendur háskólans. Tilkynnt verður um nöfn viðkomandi á allra næstu dögum.

4. Staða umsókna um nám við Háskólann á Akureyri

2604050

Háskólaráð fékk kynningu á stöðu umsókna um nám á haustmisseri 2026 við háskólann. Staðan er mjög svipuð því og var á sama tíma í fyrra, en á sama tíma í fyrra var talsverð aukning frá árinu þar á undan. Rætt var um að fá inn á næsta fund háskólaráðs kynningu frá markaðs- og kynningarfólki háskólans hvernig nám við háskólann er auglýst á meðan umsóknartímabilið stendur yfir. Þá var rætt um möguleikana á því að bjóða upp á blandað eða opið nám, þar sem nemandi getur lagt stund á nám í tveimur ólíkum greinum.

5. Staða skipulagsbreytinga hjá stoðþjónustu og stjórnsýslu

2604050

Rektor gerði háskólaráði grein fyrir hvernig tekist hefur við framkvæmd og innleiðingu skipulagsbreytinga hjá stoðþjónustu og stjórnsýslu sem háskólaráð ákvað að ráðast í á 482. fundi ráðsins. Tekist hefur ágætlega til, auglýstar hafa verið tvær stöður sviðsstjóra og umsóknarfrestur er runninn út. Viðtöl við umsækjendur standa yfir. Rektor líst vel á framhaldið.

6. Til fróðleiks

  • Doktorsvörn Andreu Hjálmsdóttur
  • Heimsókn frá sendifulltrúa Grænlands á Íslandi
  • Ársfundur HA 2026 – Starfsfólk heiðrað á ársfundi
  • Hæglæti í leikskólastarfinu viðfangsefni vel sóttrar ráðstefnu
  • Aldraðir þurfa að borða vel og njóta þess
  • Í farteskinu þekking og vonir um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfum
  • Heilbrigðislausnir framtíðarinnar í brennidepli
  • Tækninámsdagur HA
  • Fundað í Svartfjallalandi – stefnumörkun háskóla í smáríkjum
  • Námið sem er þegar komið inn í framtíðina

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:34.