Fundur var haldinn fimmtudaginn 24. september 2026 á Borgum í R262 og á Teams kl. kl. 13:30.
Rektor Áslaug Ásgeirsdóttir setti fund kl. 13:32.
Mætt voru auk hennar:
Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Helena Sigurðardóttir varafulltrúi háskólasamfélagsins
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Bjarni S. Jónasson varafulltrúi Háskólaráðs
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs
Einnig mætt:
Sindri S. Kristjánsson lögfræðingur mannauðs- og samskiptasviðs
Gestir:
Jón Steindór Árnason sviðstjóri fjármála og reksturs
Freyr Baldursson verkefnastjóri reikningshalds og fjármálagreininga
Brynjar Karlsson forseti heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs
Tom Barry forseti hug- og félagsvísindasviðs
Sigríður Margrét Sigurðardóttir deildarforseti kennaradeildar
Stefán Guðnason forstöðumaður Símenntunar HA
Margrét Auður Sigurbjörnsdóttir deildarforseti auðlindadeildar
Ólafur Jónsson verkefnastjóri
Fjarverandi:
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Ottó Elíasson fulltrú Háskólaráðs
Rektor kynnti dagskrá.
1. Fjármál og rekstur
2601068
Jón Steindór Árnason og Freyr Baldursson sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.
Freyr og Jón Steindór gerðu grein fyrir stöðu háskólans í heild sem og einstaka eininga fyrir janúar–ágúst 2026 með nýrri skýrslu. Afkoma háskólans án orlofsskuldbindingar var neikvæð um 60,5 m.kr., sem skýrist einkum af 65,1 m.kr. halla sértekjustofnana. Grunnrekstur háskólans er á áætlun og jákvæður um 3,3 m.kr.
Rætt var um útgönguspá og horfur í lok árs. Þá var rætt um kostnað sem verður til í tengslum við loftgæði og skemmdir á húsnæði (mygla o.fl.) og hvort sá kostnaður falli allur á háskólann.
Þá fékk háskólaráð kynningu á fjárlagafrumvarpi 2027 og áætlunarbréfi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir hækkun á framlögum til háskólans milli ára. Hækkunin skýrist einkum af endurskoðuðuð fjármögnunarlíkani en aðhaldskrafa, bæði almenn og sértæk, vegur á móti.
Háskólaráð þakkar fyrir kynninguna.
2. Fundaskipulag og starfsáætlun
2609081
Rektor kynnti tillögu að fundaskipulagi og starfsáætlun háskólaráðs fyrir skólaárið 2026-2027. Tillagan er lögð fram með almennum fyrirvara um breytingar sem þarf að gera á starfsáætluninni.
Háskólaráð samþykkir tillögu rektors að fundaskipulagi og starfsáætlun háskólaráðs fyrir skólaárið 2026-2027.
3. Ákvörðun um innritun um áramót
2609070
Rektor kynnti tillögu að ákvörðun um innritun um áramót samanber 40. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri, nr. 694/2022, með síðari breytingum. Tillagan er kynnt að höfðu samráði við bæði fræðasvið háskólans.
Ekki er gert ráð fyrir almennri innritun nýrra nemenda um áramót. Ákvörðun um innritun í einstakar deildir um áramót er vísað til forseta fræðasviða og stjórna fræðasviðanna, að teknu tilliti til stöðu mála í einstökum deildum, s.s. nemendafjölda, fjármögnunar og fjárhagsstöðu deilda og fræðasviða.
4. Nýtt námsframboð: Nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
2511060
Brynjar Karlsson sat fund háskólaráðs undir þessum lið.
Brynjar kynnti áform um nýtt 180 ECTS BSc-nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við hjúkrunarfræðideild. Tillagan hefur áður verið kynnt háskólaráði á 478. fundi og 481. fundi ráðsins. Brynjar vék af fundi háskólaráðs að lokinni kynningu.
Háskólaráð samþykkir nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf sem nýtt námsframboð við Háskólann á Akureyri.
5. Nýtt námsframboð: Nám í kennslu íslensku sem annars tungumáls
2606010
Tom Barry og Sigríður Margrét Sigurðardóttir sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.
Tom og Sigríður Margrét kynntu fyrir háskólaráði tillögu að nýju námi í kennslu íslensku sem annað tungumál, 60 ECTS viðbótardiplóma og 120 ECTS MA-kjörsvið við kennaradeild. Tom og Sigríður Margrét véku af fundi háskólaráðs að lokinni kynningu.
Háskólaráð samþykkir nám í kennslu íslensku sem annars tungumáls sem nýtt námsframboð við Háskólann á Akureyri.
6. STEM við Háskólann á Akureyri
2609080
Brynjar Karlsson, Margrét Auður Sigurbjörnsdóttir, Ólafur Jónsson og Stefán Guðnason sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.
Að ósk háskólaráðs kynntu Brynjar, Margrét Auður, Ólafur og Stefán það sem fram fer við Háskólann á Akureyri á sviði sk. STEM greina. Háskólaráð ræddi við gestina um það sem kynnt var.
Háskólaráð þakkar fyrir kynninguna.
7. Bókfærð mál til samþykktar
- Skipan dómnefndar 2026-2028 | 2608049 Samþykkt
- Staðfesting fræðasviðs á heiðursdoktorsnafnbót | 2606138 Samþykkt
- Breyting á stjórn Végeirsstaðasjóðs | 2609087 Samþykkt
8. Til fróðleiks
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:55.